Seinni leikur í undanúrslitum – Stjarnan kemur í heimsókn

Úrslitakeppnin í handbolta er að ná hámarki en um þessar mundir eru undanúrslitin í gangi. Leiknir eru 2 leikir og gilda samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur. Á föstudaginn kl. 18:00 leikur meistaraflokkur karla seinni leik sinn í undanúrslitum þegar að Stjarnan kemur í heimsókn en fyrri leikur liðanna lauk með sigri Hauka 28-23. Einvígið er þó […]

Aron Rafn heim í Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert 3ja ára samning við Aron Rafn Eðvarðsson um að snúa til baka til félagsins eftir 8 ár í atvinnumennsku. Aron Rafn þarf vart að kynna fyrir Haukafólki en hann verður 32 ára á þessu ári og er uppalinn í rauða Haukabúningnum. Hann kemur til liðs við Hauka frá SG BBM Bietigheim […]

Haukar semja við Ragnar Hermannsson

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Ragnar Hermannson um að koma inn í þjálfarahóp deildarinnar. Ragnar mun sinna sérþjálfun hjá deildinni en mun meðal annars vera einn af þjálfurum á Afrekslínu félgsins ásamt því að sinna einstaklingsþjálfun fyrir iðkendur deildarinnar. Ragnar Hermannsson þarf vart að kynna fyrir Haukafólk enda er hann margreyndur þjálfari hér á […]

Orri Freyr á leið í atvinnumennsku

Hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson hefur samið við Noregsmeistara Elverum til næstu 2ja ára. Orri Freyr yfirgefur því Hauka nú í sumar og heldur á vit ævintýranna í Noregi en Elverum eru ríkjandi meistarar í Noregi og hafa unnið deildina síðustu ár. Orri Freyr er enn einn uppaldi leikmaðurinn sem Haukar senda út í atvinnumennsku og […]

Darri áfram hjá Haukum næstu árin

Darri Aronsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka um 3 ár. Darri mun því leika með meistaraflokki félagsins áfram næstu árin en Darri sem lenti í erfiðum meiðslum haustið 2019 kom sterkur inn í Haukaliðið í byrjun árs. Darri var einn af betri leikmönnum liðsins eftir að keppni hófst á ný en lenti svo […]

Adam framlengir við Hauka

Skyttan Adam Haukur Baumruk hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka og mun hann spila með Haukum næstu 3 árin. Adam hefur verið einn af lykilmönnum meistaraflokks undanfarin ár og er einn af leikreyndustu leikmönnum liðsins. Á tímabilinu hefur Adam skorað 41 mark í þeim 15 leikjum sem búnir eru ásamt því að leika lykilhlutverk […]

Fjölmargir Haukakrakkar í landsliðsverkefnum

Í mars fóru fram landsliðsæfingar karla og kvenna í handbolta og þar á meðal æfðu öll yngri landslið Íslands og áttu Haukar fjömarga fulltrúa í þeim hópum. Í U-19 ára landsliði karla voru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Jakob Aronsson, Kristófer Máni Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson, Róbert Snær Örvarsson og Þorfinnur Máni Björnsson. U-17 ára landsliði […]

Andri Scheving framlengir við Hauka

Andri Sigmarsson Scheving hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Hauka sem gildir til næstu 3 ára. Andri Scheving sem er 21 árs hefur þrátt fyrir það verið annar af markvörðum Hauka undanfarin 4 ár ásamt því að vera aðalmarkvörður U-liðs Hauka þar sem hann hefur verið kosinn besti markvörður Grill 66 deildarinnar. Andri sem […]