Björgvin Páll Gústavsson hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við félagið. Samkvæmt núverandi samningi Björgvins við félagið þá vinnur Björgvin hálft starf hjá félaginu sem leikmaður, markmannsþjálfari og í markaðsstörfum. Björgvin Páll vill geta haft handboltann sem fullt starf til að geta sinnt fjölskyldu sinni betur og hefur því leitað á önnur mið. […]