Handboltinn fer af stað á ný

Eftir langa bið fer handboltinn loksins af stað á ný eftir Covid pásu. Grill 66 deild karla hefst í kvöld, föstudag, þegar strákarnir okkar halda út á Seltjarnarnes og spila við Kríu kl. 20:30 og er leikurinn sýndur í beinni vefútsendingu sem nálgast má á Facebook síðu handboltans í Haukum þegar nær dregur leik. Strákarnir eru tilbúnir í slaginn og ætla að koma með stigin 2 heim í Hafnarfjörðinn.

Stelpurnar byrja svo á morgun, laugardag, þegar að KA/Þór kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 16:00. Leikurinn verður spilaður án áhorfenda en verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Búast má við hörkuleik þar sem stelpurnar okkar ætla að selja sig dýrt en barist er um 2 mikilvæg stig.

Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fylgjast með og hvetja liðin í gegnum skjáinn. Áfram Haukar!