Handbolti – Foreldrahandbók 2026/2027

Verið velkomin í Hauka

Knattspyrnufélagið Haukar var stofnað 1931. Tilgangur félagsins er að vera vettvangur fyrir alhliða íþróttastarf, með því að iðka sem flestar íþróttagreinar og glæða áhuga almennings á gildi íþrótta. Í dag eru starfandi 6 deildir innan Hauka, Handknattleiksdeild, Karatedeild, Knattspyrnudeild, Körfuknattleiksdeild, Skákdeild og Almenningsdeild.

Á vefsíðu Hauka www.haukar.is má finna upplýsingar um starfið, stjórnir, þjálfara, æfingagjöld, opnunartíma og aðsetur, ásamt öðrum upplýsingum sem tengjast starfi félagsins.

Handknattleiksdeild Hauka notast við samskiptaforritið Abler, þar birtast allar æfingar hjá viðkomandi flokki ásamt því að samskipti við þjálfara fara fram þar.

Ef spurningar vakna um starf flokksins er best að hafa samband við viðkomandi þjálfara, Barna- og unglingaráð eða Aron Rafn í gegnum Abler eða með tölvupósti.

Skráning iðkenda

  • Allar iðkendaskráningar fara fram í gegnum Abler. Hægt er að nálgast æfingatöflur flokkanna á heimasíðu Hauka.
  • Foreldrar skrá börn sín sjálf í gegnum skráningarkerfi félagsins á abler.com/shop/haukar.
  • Mjög mikilvægt er að skrá iðkendur strax.
    • Öllum iðkendum er heimilt að koma og prófa í nokkur skipti áður en gengið er frá skráningu.
  • Skráning er forsenda fyrir því að fá að taka þátt í mótum og fjáröflunum o.fl.
  • Ef iðkandi er ekki skráður hjá félaginu er iðkandi ótryggður bæði á æfingum og í keppni.
  • Við minnum á frístundastyrkinn frá Hafnarfjarðarbæ sem hægt er að nýta til niðurgreiðslu iðkendagjalda.
  • Aðstoð við skráningu og/eða ef semja þarf um greiðslur þá má hafa samband við Aron Rafn á netfangið aronrafn@haukar.is.
  • Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn séu með Abler uppsett í símanum til að geta fylgst með hvenær æfingar eru, tilkynningum, skráningum á mót og öðru sem viðkemur iðkendum. Foreldrar fá aðgang að Abler-hóp hjá flokki iðkanda við skráningu. Nánari upplýsingar veitir Aron Rafn.
    • Mikilvægt að setja inn og/eða yfirfara allar upplýsingar um foreldra/forráðamenn, s.s. símanúmer og netföng, svo öll samskipti geti gengið sem best.

Æfingagjöld iðkenda

Athugið að æfingagjöld lækka ekki þótt iðkandi geti ekki stundað fullar æfingar. Bent er á að skráning er bindandi fyrir tímabilið og endurgreiða Haukar ekki æfingagjöld nema þá að um langvarandi veikindi/slys á barni sé að ræða eða brottflutning af svæðinu.

Slík tilfelli þarf að tilkynna skriflega til Hauka með tölvupósti á aronrafn@haukar.is.

Innifalið í ársgjöldum handknattleiksdeildar Hauka er keppnistreyja og stuttbuxur. Haukar eiga tvo keppnisgalla, annars vegar rauða treyju og rauðar stuttbuxur og hins vegar hvíta treyju og rauðar stuttbuxur. Iðkendur fá með greiddum æfingagjöldum keppnisgalla en mismunandi er hvor treyjan fylgir gjöldunum. Árið 2026 fylgir til að mynda hvít treyja og stuttbuxur með gjaldinu.

Sérstakir mátunardagar eru skipulagðir þar sem iðkendur geta pantað keppnisgallann, ásamt öðrum Hauka-merktum varningi. Þessir dagar og fyrirkomulag þeirra eru auglýstir á foreldrafundi að hausti.

Treyjunúmer

Þegar valið er númer iðkanda á treyju skal tryggja að iðkandi sem fædd/ur/tt er á sléttu ártali velji slétta tölu og iðkandi sem fædd/ur/tt er á oddaártali velji oddatölu.

Dæmi: iðkandi fædd/ur/tt árið 2015 skal velja oddatölu á bilinu 1–99 en iðkandi sem fædd/ur/tt er árið 2016 skal velja slétta tölu á bilinu 2–98.

Önnur gjöld

  • Sérstakt mótsgjald í 7. flokki fyrir mót á Selfossi.
    • Innifalið í mótsgjaldi er þátttökugjald, nesti og kostnaður vegna þjálfara.
  • Sérstakt mótsgjald er greitt í 6. flokki fyrir mót á Akureyri.
    • Innifalið í mótsgjaldi er: þátttökugjald, rúta, nesti, millimál, vasapeningur, kostnaður vegna þjálfara og fararstjóra.
  • Sérstakt mótsgjald er greitt í 5. flokki fyrir mót í Vestmannaeyjum, Ísafirði og Akureyri.
    • Innifalið í mótsgjaldi er: þátttökugjald, rúta/Herjólfur, nesti, millimál, vasapeningur, kostnaður vegna þjálfara og fararstjóra.
  • Mótsgjald er innheimt fyrir þátttöku á bikarmótum.

Allir þátttakendur móta þar sem greitt er sérstakt mótsgjald greiða sama mótsgjaldið óháð því hvort viðkomandi kýs að nýta sér þann samgöngumáta sem skipulagður er fyrir flokkinn eða ekki og/eða hvort iðkandi gistir eða ekki.

Barna- og unglingaráð

Barna- og unglingaráð (BUR) Hauka er í forsvari fyrir barna- og unglingastarf deildarinnar og vinnur með stjórnendum félagsins að stefnumótun, samræmingu vinnubragða innan einingarinnar, milli ólíkra eininga félagsins og skipulagi deildarinnar í heild. BUR stuðlar að árangursríkri umgjörð og markvissri uppbyggingu íþróttastarfsins innan Handknattleiksdeildar Hauka. Þau gæta hagsmuna iðkenda og foreldra með því að tryggja að jafnréttis-, siða- og öðrum reglum félagsins sé fylgt eftir í barna- og unglingastarfi deildarinnar.

Tryggja að foreldrar geti með frumkvæði sínu og hugmyndum eflt íþróttastarfið á sama tíma og stuðlað sé að góðu samstarfi milli iðkenda, starfsmanna og þjálfara. BUR keppist við að stuðla að árangursríkri umgjörð og markvissri uppbyggingu íþróttastarfsins sem og félagsstarfi tengdu handboltaiðkun. BUR er í virku samstarfi við stjórn deildarinnar.

Í Barna- og unglingaráði Hauka veturinn 2026–2027 sitja:

  • Anna Guðný Andersen
  • Áslaug Þorgeirsdóttir
  • Jónatan Ingi Jónsson
  • Margrét Fídes Hauksdóttir

Þjálfarar

NafnStaðaNetfangSími
Gunnar MagnússonÞjálfari meistaraflokks karlagunnimagg77@gmail.com899-3260
Stefán ArnarsonÞjálfari meistaraflokks kvenna
Rut Arnfjörð JónsdóttirÞjálfari meistaraflokks kvenna


Bjarni Gunnar BjarnasonÞjálfari U-liðs karlabjarnigunnar@pm.is888-4787
Daniel Wale Adeleye
Herbert Ingi Sigfússon
Þjálfari 3. flokks karladanielwale45@gmail.com
herbert@haukar.is
770-7377
847-9993
Jón Þorbjörn JóhannssonÞjálfari 3. flokks kvennanonnitobbi@gmail.com778-9959
Darri AronssonÞjálfari 4. flokks karladarriarons@gmail.com866-4722
Friðrik Benoný GarðarssonÞjálfari 4. flokks kvennafgardarsson@gmail.com896-6816
Aron Daði BergþórssonÞjálfari 5. flokks karlaarondadi01@gmail.com861-8246
Friðrik Benoný GarðarssonÞjálfari 5. flokks kvennafgardarsson@gmail.com896-6816
Jóhann Bjarki HaukssonÞjálfari 6. flokks karlajohannbjarkihauksson@gmail.com857-2026
Daniel Máni Sigurgeirsson,
Sigurður Snær Sigurjónsson
Þjálfari 6. flokks kvennadanielmani07@gmail.com
sigurdursnear9973@gmail.com
7888112
8694215
Kristinn BjörgúlfssonÞjálfari 7. flokks
kristinn@bergulfur.is8992085
Jóhann Bjarki HaukssonÞjálfari 7. flokks kvennajohannbjarkihauksson@gmail.com857-2026
Jóntan Ingi Jónsson
Þjálfari 8.flokksjonataningij@gmail.com 8304810
Davíð Stefán ReynirssonÞjálfari 9.flokksreynisson97@gmail.com690-4595
Darri AronssonAfrekssþjálfunn/sérþjálfundarriarons@gmail.com8664722

Mót yngri flokka 2026–2027

Mót/leikir innanlands

Mismunandi er milli flokka hvernig fyrirkomulag móta er:

  • Í 8. flokki eru haldin 4 mót, þar er spilaður mjúkbolti og leikið eftir minniboltareglum HSÍ.
  • Í 7. flokki eru haldin 5 mót, þar er spilaður mjúkbolti og leikið eftir minniboltareglum HSÍ.
  • 6. flokkur: Íslandsmót sem dreifist yfir sex mótshelgar. Miðað við eina keppnishelgi úti á landi. Bikarkeppni með útsláttarfyrirkomulagi.
  • 5. flokkur: Íslandsmót sem dreifist yfir sex mótshelgar. Miðað við eina til tvær keppnishelgar úti á landi. Bikarkeppni með útsláttarfyrirkomulagi.
  • 3.–4. flokkur: Íslandsmót skipulagt sem deildarkeppni með stigum og úrslitakeppni í lok tímabilsins. Bikarkeppni með útsláttarfyrirkomulagi.

Dómarinn

  • Munum að dómarinn er hluti af leiknum – án hans verður enginn leikur spilaður.
  • Sýnum dómaranum virðingu – það er dómarinn sem dæmir leikinn.
  • Höfum í huga að dómarar í yngri flokkum eru iðkendur, leikmenn eða sjálfboðaliðar, ekki þaulvanir dómarar.
  • Mörg eru að dæma í fyrsta sinn.

Hliðarlínan

  • Mættu með bros á vör: Jákvæð orka smitast beint inn á völlinn.
  • Leyfðu barninu að spila: Ekki fjarstýra barninu með því að hrópa „skjóttu“, „sendu“ eða „hlauptu“.
  • Skoðaðu eigin líkamstjáningu: Börn líta oft til hliðarlínunnar. Ef þú fórnar höndum eða hristir höfuðið sér barnið það.
  • Spyrðu réttu spurninganna eftir leik: Í staðinn fyrir „Unnuð þið?“ eða „Skoraðir þú?“, spurðu frekar: „Var gaman?“ eða „Hvernig fannst þér ganga?“.

„Sýnum leikni í verki“

Meginmarkmið þessara skilaboða er að minna fullorðna á ábyrgð sína:

  • Íþróttir eiga að vera griðastaður: Börn eiga að upplifa öryggi og gleði á æfingum og leikjum.
  • Heilbrigð samkeppni: Áherslan á alltaf að vera á framför, samvinnu og virðingu, fremur en úrslit á töflunni.
  • Foreldrar eru bakhjarlar: Hlutverk foreldra er að styðja, keyra, hvetja og hrósa – þjálfunin er í höndum sérfræðinganna.

Foreldraráð

Foreldraráð er stofnað í hverjum flokki fyrir sig að hausti. Halda þarf foreldrafund í upphafi starfstímabils, oftast nær á haustin, þar sem þjálfari hjálpar til við að stofna foreldraráð og koma því af stað. Hver flokkur þarf að hafa 2–3 aðila í foreldraráði.

Hlutverk foreldraráða er að:

  • sjá um skipulagningu keppnisferða í samráði við þjálfara,
    • sjá um að skipa fararstjóra í ferðir,
  • vera þjálfaranum innan handar í keppnisferðum og á mótum,
  • aðstoða við fjáraflanir,
  • vera í forsvari fyrir foreldra,
  • skipuleggja a.m.k. tvo félagslega viðburði yfir tímabilið, einn á haustönn og einn á vorönn.

Hugmyndir að viðburðum: Pizzahittingur fyrir heimaleiki meistaraflokka og liðið fer saman á leikinn, bíókvöld, sundferðir, pálínuboð og fleira skemmtilegt.

Þrátt fyrir foreldraráð er mikilvægt að allir forsjáraðilar taki virkan þátt í starfi og aðstoði þegar við á. Ýmis verkefni þarf að manna þegar kemur að því að reka íþróttafélag og er mikilvægt að iðkendur og forsjáraðilar séu tilbúin að taka þátt í að styrkja félagið með því að bjóða sig fram í sjálfboðastörf þegar við á. Dæmi um verkefni sem gott er að fá aðstoð við eru vaktir í sjoppu Hauka þegar mót eru haldin í húsinu, dómgæsla á leikjum og skráning og stýring á tíma- og stigatöflum. Saman eflum við félagið okkar.

Ferðalög (innanlands) á vegum Hauka

Það er alltaf skemmtilegt að fara með iðkendur á handboltamót. Mörg börn bíða spennt eftir að fá að fara á fyrsta gistimótið og gott er að muna að öll þessi gistimót eru mikilvægur undirbúningur iðkenda þegar þau fara erlendis á mót.

  • Snjalltæki/símar skulu ekki fylgja börnum á gistimót (þetta á við um 5. flokk og yngri).
  • Ferðalög út á land (Akureyri, Ísafjörður og Vestmannaeyjar) hefjast og enda á Ásvöllum. Lið ferðast saman og skulu þau fara í rútu.
    • Gjald fyrir rútur dreifist jafnt á milli iðkenda í liðinu.
    • Fararstjórar og þjálfarar ferðast með liði í rútu á milli áfangastaða.
  • Ef iðkandi fer ekki eftir þeim reglum sem settar eru á ferðalögum með Haukum þá er hægt að senda viðkomandi heim á kostnað foreldra/forráðamanna.

Hlutverk fararstjóra (á við á gistimótum)

  • Sjá um skipulagningu ferða í samráði við foreldraráð og þjálfara.
  • Heldur utan um nöfn og símanúmer forsjáraðila allra iðkenda.
  • Fá upplýsingar frá forráðamönnum ef iðkendur eru með sérþarfir t.d. ofnæmi, lyf o.fl.
  • Ákveður, í samráði við þjálfara, hvort iðkendur séu með pening meðferðis og hversu mikinn – iðkendur bera ábyrgð á peningum, nema annað sé ákveðið í samráði við fararstjóra.
  • Sjá til þess að allt sé til reiðu fyrir ferðir.
  • Sjá til þess að farið sé eftir reglum félagsins í ferðum.
  • Halda utan um hópinn í ferðum og sjá til þess að allir njóti sín og líði vel.
  • Fara yfir rútu/ferðamátann þegar iðkendur eru farnir út og tryggja að ekkert hafi gleymst. Þetta á einnig við um klefa og önnur svæði sem iðkendur eru á.
  • Hjálpa til við að tryggja að allur farangur skili sér með iðkendum.
  • Gistir með liðinu á meðan á ferðalagi stendur.
  • Sér til þess að komin sé ró kl. 22:00 á kvöldin.

Hlutverk liðsstjóra

  • Sér til þess að allir séu mættir á réttum tíma í leik.
  • Aðstoðar við upphitun leikmanna og kemur upp góðri stemningu fyrir leik þar til þjálfari mætir.
  • Ef eitthvað kemur upp á og þjálfari er ekki mættur þegar leikur hefst sér liðsstjóri um að byrja leikinn.

Hlutverk nestisstjóra (á við á gistimótum)

  • Sér um að taka saman það nesti sem liðið þarf með – þetta á aðeins við ef safnað er í sameiginlegt nesti/millimál.
  • Aðstoðar gististjóra/næturvörð við að græja samlokur ofan í liðið fyrir háttinn.
  • Ef ekki næst að safna sameiginlegu nesti sér nestisstjóri, í samráði við aðra forráðamenn í sínu liði, um að kaupa inn brauð og ávexti fyrir kvöldnasl.
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að sjá börnum sínum fyrir millimáli yfir daginn – á þetta við þegar ekki er gert ráð fyrir sameiginlegu nesti.

Hlutverk foreldra á svæðinu (á við á gistimótum)

  • Það er ekki í boði að taka sitt barn út úr dagskránni.
  • Það er ekki í boði að fara ekki eftir reglum sem hafa verið settar, t.d. um peninga, síma, mat o.fl.
  • Aðstoða við að koma iðkendum til/frá stöðum eftir þörfum. Þetta á t.d. við um ferðir í sund, ísbúðir eða annað sem dagskráin inniheldur (ef ekki er hægt að ganga á milli staða).

Hlutverk þjálfara í ferðum á vegum Hauka

  • Ber ábyrgð á hópnum.
  • Skipuleggur dagskrána með fararstjórum miðað við leikjaplan; sund, skemmtanir, ísferðir o.fl.
  • Sinnir hópnum yfir daginn, á milli leikja og að lokinni keppni fram yfir kvöldmat í samráði við fararstjóra.
  • Talar við iðkendur þegar þeir eru komnir í ró um kvöldið, fer yfir liðinn dag og morgundaginn – hvenær þetta er gert er ákveðið með fararstjórum.
  • Þjálfarar skulu ávallt vera iðkendum innan handar.
  • Þjálfari sem gistir ekki með hópnum er samt hluti af allri dagskrá frá morgni til kvölds. Það þurfa að vera góð samskipti við fararstjóra um allt skipulag í ferðinni og þjálfarar bera ábyrgð á hópnum með fararstjórum. Hvenær þjálfari getur kvatt hópinn eftir hvern dag er gert í samráði við fararstjóra. Það er ekki í boði að mæta einungis í leikina.
  • Ferðir eru alfarið á kostnað iðkenda. Foreldraráð getur í samráði við foreldra í viðkomandi flokki skipulagt fjáraflanir til að létta róðurinn við að standa straum af kostnaði.
  • Vinsamleg tilmæli eru að konur gisti með stúlkum og karlar með drengjum á gistimótum. Að öðru leyti er æskilegt að aðstoðarfólk í keppnisferðum sé af báðum kynjum.
  • Fjöldi fararstjóra fer eftir aldri og fjölda iðkenda. Aldrei skal einn fullorðinn bera ábyrgð á hópi barna í gistingu. Ef forsjáraðili kemst ekki með í ferð verður hann að finna ábyrgðaraðila fyrir sitt barn.
  • Ætlast er til að forsjáraðilar taki a.m.k. eina vakt yfir mót enda er það frábært tækifæri til þess að kynnast hópnum betur.
  • Barn er hluti af liði sínu á meðan á móti stendur. Ætlast er til þess að það fylgi hópnum innan vallar og utan allan tímann. Það skapar góða liðsheild og stemningu að eyða tíma saman á milli leikja.
  • Þetta á líka við ef iðkandi getur af einhverjum ástæðum ekki gist með hópnum (á við um gistimót).

Ferðalög (erlendis) á vegum Hauka

Allar þær reglur sem taldar eru upp hér að ofan og eiga við ferðalög innanlands og/eða þegar farið er á einstaka mót gilda einnig um ferðalög erlendis. Að auki þarf að huga að mörgu þegar flokkur ákveður að fara erlendis. Það er markmið Hauka að allir iðkendur fái tækifæri á að upplifa það að fara erlendis í keppnisferð, í því liggur mikill lærdómur fyrir iðkendur og forráðafólk þeirra.

Foreldraráð og þjálfari sjá um skipulag á ferðinni og ef fleiri flokkar eru að fara skal tengja viðkomandi foreldraráð saman. Foreldraráðin þurfa að vinna saman því hjá Handknattleiksdeild Hauka er það þannig að þeir flokkar sem fara á sama stað fara út sem hópur undir merkjum Hauka.

Hjá iðkendum í 3.–5. flokki tíðkast að fara í æfinga- og/eða keppnisferðir erlendis um páska eða yfir sumartímann.

Haukar hafa ákveðið að 5. flokkur fari á Partille Cup, sem haldið er í Gautaborg í Svíþjóð, annað hvert ár, þá á sléttu ártali.

Eldri flokkar (3. og 4. flokkur) hafa farið á Generation Handball sem haldið er í Viborg í Danmörku og/eða Granollers Cup sem haldið er í Barcelona á Spáni.

BUR heldur utan um samskipti við ferðaskrifstofur sem selja ferðir á þessi mót, í samráði við foreldraráð og þjálfara þeirra flokka sem fara hverju sinni.

Ákvarðanir um ferðir erlendis skulu teknar á foreldrafundum að hausti. Mikilvægt er að hafa að leiðarljósi, ef fyrirhuguð er keppnis- eða æfingaferð erlendis, að allir iðkendur innan flokksins hafi tækifæri til að fara með.

Fjáraflanir

Markmiðið er að bjóða upp á fjáraflanir þegar farið er á stærri mót til að lækka kostnað og til að gefa flestum kost á að fara með.

Upphæðir sem safnað er í sameiginlegum fjáröflunum í nafni Hauka skulu geymdar á bankareikningi flokksins. Haldið er utan um upphæð hvers iðkanda sérstaklega. Dæmi: Iðkandi A tekur þátt í öllum sameiginlegum fjáröflunum og safnar sér inn 150.000 kr. á meðan iðkandi B tók einungis þátt í 3 sameiginlegum fjáröflunum og safnaði sér inn 75.000 kr. Hætti barn iðkun á miðju tímabili er ekki hægt að fara fram á að fá greiddan út þann pening sem safnast hefur í sameiginlegum fjáröflunum.

Fjáraflanir þurfa mjög gott skipulag og utanumhald um hvenær hvaða fjáröflun á að fara fram, svo ekki séu allir á sitt hvorum tímanum með kannski sama hlutinn. Hægt er að fá afrit af skjali til að halda utan um fjáraflanir hjá Barna- og unglingaráði.

Foreldraráð í hverjum flokki sér til þess að mannaðar séu fjáröflunarnefndir þegar ljóst er að þörf er á fjáröflun. Nefndin sér um að skipuleggja fjáraflanir til að standa straum af kostnaði vegna móta og æfingaferða erlendis.

Hugmyndir að fjáröflunartækifærum:

  • Varningasala í einkasölu (hver og einn selur fyrir sig) – Facebook-sala eða gengið í hús.
    • Það hefur m.a. gefist vel að selja salernispappír, eldhúsrúllur, frosið pizzadeig, túlípana, kaffibaunir, lakkrís og hlaup, kerti, harðfisk, gulrætur og frosinn fisk.
  • Dósasafnanir
  • Blaðaútburður
  • Vörutalningar í verslunum
  • Hvað annað sem fjáröflunarnefnd dettur til hugar.

Fatnaður í keppnis- og/eða æfingaferðum

Yfirleitt ákveður hver og einn flokkur (þegar farið er á mót erlendis) að vera í samskonar fatnaði og er það verkefni foreldraráðs hvers flokks að taka þá ákvörðun og sjá um pöntun. Það er alltaf betra að fá tilboð í meira magn og gott að hafa alla eins. Hér verður framkvæmdastjóri/deildin að samþykkja hvar verslað er, t.d. vegna samninga sem deildin er með.

Keppnisgallinn

Við keppni skulu iðkendur vera í fatnaði merktum Haukum:

  • Rauð eða hvít keppnistreyja merkt með númeri
  • Rauðar Hauka-stuttbuxur
  • Hvítir sokkar
  • Handboltaskór

Kennsluskrá í þjálfun yngri flokka

Hér að neðan má sjá áherslur í þjálfun hvers aldursflokks hjá Handknattleiksdeild Hauka. Smelltu á flokk til að sjá nánar.

9. flokkur – Byrjendaflokkar 6 ára og yngri

Áherslur

Í þessum flokki er lögð áhersla á fjölbreyttar æfingar sem stuðla að aukinni hreyfireynslu og þar með hreyfiþroska barnanna. Mikilvægt er að börnin kynnist alls konar tækjum sem til staðar eru í sal. Þau kynnast boltanum og hugmynd leiksins í handbolta. Engin áhersla er lögð á keppni sem slíka heldur að börnin kynnist því að leggja sig fram sem einstaklingar. Áhersla er lögð á að hafa allt í leikrænu formi. Í þeim leikjum þar sem keppt er skal minnka mikilvægi keppninnar en auka mikilvægi þess að leggja sig fram, gera sitt besta og hafa gaman.

Dæmi um æfingaform

  • Hlaupahringir þar sem börnin fá að klifra, skríða, halda jafnvægi, hoppa á milli t.d. dýna eða hringja, trampólín og að kasta og grípa bolta.
  • Að kasta í mark eða að hitta eitthvað getur verið markmið með boltanum. Drippla bolta einhverja ákveðna leið og kasta svo í mark eða keilur.
  • Þrautahringir sem innihalda bæði hlaup, stökk, klifur og jafnvel kaðla. Einnig getur verið boltaþraut í sama hring allt eftir aðstæðum í viðkomandi íþróttahúsi.

Íþróttaskólinn

Íþróttaskólar barnanna eru kjörinn vettvangur til þess að hefja markvissar æfingar með börnum. Innihald æfingar er mjög almennt eins og rakið er hér á undan og einnig að barnið venjist samveru með öðrum í íþróttum og læri að taka tilsögn o.þ.h.

8. flokkur – 6–7 ára (1. þrep: Kennsla grunnþátta)

Almennir áherslupunktar

  • Fjölbreytt grunnhreyfinám.
  • Engar taktískar þvinganir í spili.
  • Minnibolti með frjálst spil. Markmaður spilar einnig sókn og myndar yfirtölu.
  • Ánægja.

Áherslupunktar í vörn

  • Undirtala í vörn.
  • Áhersla lögð á að vinna boltann.

Áherslupunktar í sókn

  • Frjálst spil byggt á sköpunargleði einstaklingsins.
  • Kenna grunnhreyfingar s.s. kasta og grípa (rétt kastlag), skotafbrigði (gólfskot, stökkskot) og fintur án þess að festa hreyfingar um of. Hreyfing án bolta.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Grunnþættir í snerpu og hraða.
  • Almenn samhæfing með og án bolta.
  • Fjölbreytt grunnhreyfinám í formi leikja.
  • Kenna rétta kasthreyfingu og að lenda eftir hopp.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Áhersla á að þátttakendur fái jákvæða upplifun af handknattleik.
  • Áhersla á að þjálfa tillitssemi við aðra.
  • Kenna að taka tilsögn.
7. flokkur – 8–9 ára (1. þrep: Kennsla grunnþátta)

Almennir áherslupunktar

  • Fjölbreytt grunnhreyfinám.
  • Kenna í leikjaformi.
  • Engar taktískar þvinganir í spili.
  • Minnibolti með frjálst spil. Markmaður spilar einnig sókn og myndar yfirtölu.
  • Ánægja.

Áherslupunktar í vörn

  • Grunnhreyfingar í vörn.
  • Undirtala í vörn.
  • Áhersla lögð á að vinna boltann.

Áherslupunktar í sókn

  • Frjálst spil byggt á sköpunargleði einstaklingsins.
  • Kenna grunnhreyfingar s.s. kasta og grípa (rétt kastlag), skotafbrigði (gólfskot, stökkskot) og fintur án þess að festa hreyfingar um of. Hreyfing án bolta. Halda breidd (stöður).
  • Sköpun og innsæi.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Grunnþættir í snerpu og hraða.
  • Almenn samhæfing með og án bolta.
  • Fjölbreytt grunnhreyfinám í formi leikja.
  • Kenna rétta kasthreyfingu og að lenda eftir hopp.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Áhersla á að þátttakendur fái jákvæða upplifun af handknattleik.
  • Áhersla á að þjálfa tillitssemi við aðra.
  • Kenna að taka tilsögn.
6. flokkur – 10–11 ára (1. þrep: Kennsla grunnþátta)

Almennir áherslupunktar

  • Fjölbreytt grunnhreyfinám.
  • Mikil áhersla á einstaklingsfærni.
  • Engar taktískar þvinganir í spili.
  • Frjálst spil og nota keppnislíka leiki.
  • 5 á móti 5.
  • Ánægja.
  • Markmannsþjálfun í formi grunnhreyfinga. Leyfa fleirum að prófa markmannsstöðuna.

Áherslupunktar í vörn

  • Einstaklingsfærni.
  • 5+1 (markmaður) rétt utan við punktalínu. Þó er aðlögun að reglum HSÍ í mótum.
  • Skipting vallarins í varnarsvæði. Hver varnarmaður gætir ákveðins svæðis.
  • Kenna hjálparvörn.

Áherslupunktar í sókn

  • Skipting vallarins í svæði (undirbúningur spils í ákveðnum stöðum).
  • Stöðugar skiptingar í stöðum.
  • Leysa frjálst inn (horn og bakk). Staðsetja sig í stöðu sem er yfirgefin.
  • Einstaklingsfærni, kasta og grípa (rétt kastlag), skotafbrigði (gólfskot, stökkskot, undirhandarskot og skot í skrefi) og fintur án þess að festa hreyfingar um of (rými fyrir eigin fintur). Hreyfing án bolta.
  • Halda breidd (stöður).
  • Stimplun og samvinna í smærri hópum: 2:1, 2:2, 3:2 og 3:3.
  • Hraðaupphlaupsæfingar, t.d. 2:1 og æfingar með sendingu frá markmanni.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Grunnþættir í snerpu og hraða.
  • Almenn samhæfing með og án bolta. Aukin áhersla á sérhæfðari samhæfingu hreyfinga.
  • Fjölbreytt grunnhreyfinám.
  • Kennsla styrktaræfinga með eigin líkama. Sjá einnig leiðbeiningar HSÍ.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Áhersla á að þátttakendur fái jákvæða upplifun af handknattleik.
  • Stuðla að félagslegum þroska í hópi, tillitssemi og samstöðu.
  • Fræðsla um ýmis málefni (einelti, fordóma, hollar lífsvenjur o.s.frv.).
5. flokkur – 12–13 ára (1. þrep: Kennsla grunnþátta)

Almennir áherslupunktar

  • Einstaklingsfærni: nota hagkvæm skilyrði til þess að læra nýjar hreyfingar (aldur rétt fyrir kynþroska).
  • Ýta undir sköpunargleði í leiknum.

Áherslupunktar í vörn

  • Rétt varnarstaða.
  • Verjast á stórum svæðum 1:1, 2:2 og 3:3.
  • Maður á mann vörn á svæði við 9 metra línu.
  • 1:5 vörn. Hafsent gætir línumanns, 3:3, 3:2:1 eða 5:1. Velja 2 afbrigði af varnarleik til að æfa.
  • Vellinum skipt í varnarsvæði og ákveðnar samvinnureglur varnar eru kenndar, s.s. hjálparvörn og skiptingar við ýmsum sóknaraðgerðum.

Áherslupunktar í sókn

  • Einstaklingsfærni, fjölbreytt kennsla tækni. Tækni hverrar stöðu er kennd ítarlegar en þó er ekki lögð áhersla á stöðusérhæfingu leikmanna. Kasta og grípa (áhersla á rétt kastlag), knattrak, gabbhreyfingar (grunnfintur, persónulegar og t.d. yfirhandarfinta, skotfinta, snúningsfinta o.fl.), skotafbrigði (fá hendi upp, gólfskot, stökkskot, undirhandarskot, skot í skrefi og kringluskot).
  • 1:1 leikur á stóru svæði.
  • Hlaupa sig frían, stöðuskiptingar.
  • Leysa frjálst inn með og án bolta. Stöðuskipti (skipti), klippingar (miðja > skytta), tékki. Línumaður út, Cairo.
  • Samspil, þ.e. binda einn varnarmann og losa bolta á meðspilara (stimpla). Rússi o.fl.
  • Nota breidd og dýpt vallarins.
  • Samvinna í minni hópum 2:1, 2:2, 3:2 og 3:3.
  • Hraðaupphlaup, fyrsta bylgja með sendingu frá markmanni og útileikmönnum og hröð framrás seinni bylgju, samt í frjálsu spili. Leysa má inn en ekki festa leikatriði um of.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Grunnform snerpu og hraða.
  • Almenn og sérhæfð samhæfing (kenna ítarlegar tækniæfingar).
  • Fjölbreytt grunnhreyfinám.
  • Létt grunnúthaldsþjálfun með leikrænu ívafi.
  • Grunnur í styrktarþjálfun með eigin líkamsþyngd.
  • Einfaldar forvarnaræfingar.
  • Kennsla í lyftingum með lóð getur byrjað á seinni hluta tímabilsins.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Áhersla á að þátttakendur fái jákvæða upplifun af handknattleik.
  • Áhersla á að stuðla að félagslegum þroska í hópi.
  • Tillitssemi og samstaða lykilatriði.
  • Að hver og einn iðkandi fái hlutverk í hópnum.
  • Efling félagsþroska með æfingum sem leggja áherslu á samvinnu og samskipti.
  • Fræðsla um ýmis málefni (einelti, fordóma, hollar lífsvenjur o.s.frv.).
4. flokkur – 14–15 ára (2. þrep: Grunnþjálfun)

Almennir áherslupunktar

  • Engin sérstök áhersla á stöðusérhæfingu en lögð er áhersla á að þjálfa leikmenn í fleiri en einni stöðu.
  • Fjölbreytni í grunnþjálfun.
  • Einstaklingstaktík (stöður).
  • Hóptaktík (2:2, 3:3).
  • Grunnleikhæfni (spila meira en að æfa).
  • Einstaklingsfærni (kasta, grípa, skot og skotafbrigði, gabbhreyfingar o.fl.).

Áherslupunktar í vörn

  • Einstaklingsþjálfun s.s. rétt varnarstaða, hjálparvörn.
  • Kennsla framliggjandi varna, t.d. 5:1 og 3:2:1 varnar. Kennsla 6:0.
  • Notkun á maður á mann vörn eftir aðstæðum.
  • Áhersla lögð á að vinna boltann.
  • Æfa að verjast á stórum svæðum 1:1, 2:2, 3:3 og 4:4.
  • Skiptingar við almennum sóknaraðgerðum.

Áherslupunktar í sókn

  • Festa spil eftir stöðum.
  • Stöðuskiptingar og klippingar bæði breytt og djúpt.
  • 1:1 á þrengra svæði.
  • Grunnform í taktík í smærri hópum. Skipti, júggi, lína.
  • Samvinna í minni hópum og lesskilningsæfingar 2:1, 2:2, 3:2, 3:3, 4:3, 4:4 og 5:4 á mismunandi svæðum.
  • Snúa hratt vörn í sókn.
  • Samvinna með línumanni (innanverðar og utanverðar blokkeringar).
  • Einfaldar innleysingar: 1, 2 og 3 (miðjumaður).
  • Stöðuskipti: Skipti, Júggi og Cairo.
  • Klippingar: Tékki (skytta > miðja), klipping (miðja > skytta) og löng klipping (skytta > skytta).
  • Hvetja leikmenn til þess að vera skapandi í sínum leik og samspili. Koma með lausnir.
  • Hraðaupphlaup, fyrsta bylgja með sendingu frá markmanni og útileikmönnum og hröð framrás seinni bylgju, samt í frjálsu spili. Leysa má inn en ekki festa leikatriði um of.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Skipulögð styrktarþjálfun sem inniheldur æfingar sem styrkja allan líkamann.
  • Kennsla í lyftingum með lóðum.
  • Hlaupa- og stökk-ABC (hlaupa- og stökktækni).
  • Grunnúthaldsþjálfun í leikrænu formi. Hraðari, styttri langhlaup (3–5 km) og byrjun intervals með minna álagi.
  • Almenn og sérhæfð samhæfingarþjálfun.
  • Sjá einnig leiðbeiningar HSÍ.
  • Forvarnaræfingar (fittoplay.org).

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Efla áhugahvöt og stuðla að því að þátttakendur verði virkir í félagsstarfinu.
  • Kenna og þjálfa markmiðssetningu, sjálfsaga og þrautseigju.
  • Leggja áherslu á mikilvægi liðsheildar. Hver og einn sem mætir á æfingu hefur hlutverk, ekki einungis lykilleikmenn.
3. flokkur karla og kvenna – 16–17 ára (3. þrep: Uppbyggingarþjálfun)

Almennir áherslupunktar

  • Stöðusérhæfing (samt þróa aðrar stöður áfram). Ákveðnir leikmenn geta spilað flestar stöður – það er jákvætt.
  • Áhersla á einstaklingstaktík í stöðunum.
  • Kenna taktík í smærri hópum (2:2, 3:3).
  • Áframhald á þróun almennrar spilhæfni.
  • Einstaklingsfærni (kasta, grípa, skot og skotafbrigði, gabbhreyfingar o.fl.).

Áherslupunktar í vörn

  • Unnið áfram með 3:2:1 framarlega.
  • 5:1 vörn með breytilegu hlutverki senters/framherja, 4+1+1 (vinna boltann).
  • Kennsla 6:0 varnar.
  • Bregðast við yfirgöngum með þessum varnarkerfum.
  • Áhersla lögð á að vinna boltann en einnig að stöðva sóknarmann rétt.
  • Æfa sig að verjast í minni hópum: 2:2, 3:3 og 4:4.
  • Rétt varnarstaða.
  • Hávörn.
  • Tímasetningar og staða í hjálparvörn.
  • Skiptingar við almennum sóknaraðgerðum og taktísk gagnvart andstæðingi.
  • Auka taktíska hugsun í varnarleik gagnvart eigin styrkleikum og styrkleikum/veikleikum andstæðingsins.

Áherslupunktar í sókn

  • Áframhaldandi þróun stöðuskiptinga (klippingar, leysa upp).
  • Spil með margvíslegum úrlausnum eftir yfirganga, klippingar, stimplanir og blokkeringar.
  • Samvinna í smærri hópum (2–3 saman, krefjast fjölbreytileika í úrlausnum).
  • Leikfræði einstaklingsins (einstaklingstaktík (stöður)).
  • Hraðaupphlaup 1. og 2. bylgja æfð markvissar en í undangengnum þrepum. Hröð framrás í hraðaupphlaupum (hlaupaleiðir en ekki leikkerfi). Hægt að hafa leikkerfi þegar fyrsta árásin er búin.
  • Byrjunarfærslur í júgga, Barca og Cairo o.fl. Leikkerfi verða aðeins flóknari. Vinna með taktíska hugsun, þ.e. styrkleika eigin liðs gagnvart veikleikum mótherja.
  • Brjóta leikkerfi niður og æfa vissar leikstöður í kerfum þegar unnið er í smærri hópum og í leikskilningsæfingum.
  • Hvetja leikmenn til þess að vera skapandi í sínum leik og samspili. Koma með lausnir.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Almenn vöðvauppbygging með lyftingaþjálfun og æfingar í sal.
  • Þjálfun sprengikrafts með hopp- og skotæfingum. Einnig með þjálfun í lyftingum. Mikilvægt er að lyftingar séu fjölbreyttar, taki á flestum vöðvahópum og taki mið af leikstöðu og líkamsgerð iðkenda.
  • Grunnúthald að loftfirrðum mörkum.
  • Hröð, styttri hlaup.
  • Intervalþjálfun tekin í mun meiri mæli inn í þjálfun, bæði sem þjálfun í hraðaupphlaupum og í hlaupum án bolta.
  • Athugið leiðbeiningar HSÍ hvað varðar líkamlega þjálfun.
  • Skipulagðar forvarnaræfingar (fittoplay.org).
  • Almenn og sérhæfð samhæfingarþjálfun.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Þjálfa markmiðssetningu, sjálfsaga og þrautseigju.
  • Leggja áherslu á liðsheild, liðsanda og markmiðasetningu hópsins.
  • Efling félagsþroska með æfingum sem leggja áherslu á samvinnu og samskipti.
  • Finna þátttakendum hlutverk hjá félaginu.
  • Þjálfarar undirbúi leikmenn til þátttöku í meistaraflokki í samvinnu við félagið og starfsmenn þess.
U-lið karla og kvenna (4. þrep: Uppbyggingarþjálfun)

Almennir áherslupunktar

  • Stöðusérhæfing. Taktísk þjálfun fer líka fram á svæði utan eigin stöðu.
  • Leikhæfni á móti mismunandi vörnum og tegundum handbolta.
  • Meiri nákvæmni og meiri hraði í leiknum.

Áherslupunktar í vörn

  • 3:2:1 vörn og 5:1, detta niður í 6:0 í yfirgangi eða halda 5:1 eða 5+1.
  • 6:0 vörn. Dýpri skilningur og afbrigði.
  • Bregðast rétt við eftir aðstæðum (flöt vörn, opin vörn og að skapa og sjá aðstæður fyrir).
  • Vörn út frá mótherja. Auka taktíska hugsun í varnarleik gagnvart eigin styrkleikum og styrkleikum/veikleikum andstæðingsins.

Áherslupunktar í sókn

  • Markvisst spil eftir að maður hefur verið unninn, leyst upp, klippt o.s.frv. (sbr. 3. þrep).
  • Hraðabreytingar í spilinu eftir aðstæðum.
  • Spila úr 2. bylgju í hraðaupphlaupi.
  • Hröð miðja með ýmsum leikafbrigðum.
  • Leikkerfi verða aðeins flóknari. Vinna með taktíska hugsun, þ.e. styrkleika eigin liðs gagnvart veikleikum mótherja.
  • Brjóta leikkerfi niður og æfa vissar leikstöður í kerfum þegar unnið er í smærri hópum og í leikskilningsæfingum.
  • Hvetja leikmenn til þess að vera skapandi í sínum leik og samspili. Koma með lausnir.

Líkamleg þjálfun / samhæfing / forvarnir meiðsla

  • Keppnislíkar snerpuæfingar.
  • Reaktív sprengikraftsþjálfun (t.d. hopp yfir 30 cm háar hindranir).
  • Keppnisúthald/sérhæft úthald (t.d. fartlek).
  • Skipulögð forvarnarþjálfun.
  • Einstaklingsmiðuð styrktarþjálfun sem tekur mið af fyrirbyggjandi áhrifum æfinga.

Félagslegir þættir / persónuleiki

  • Þjálfa markmiðssetningu, sjálfsaga og þrautseigju.
  • Vinna með sjálfstraust og styrkingu sjálfsmyndar.
  • Finna þátttakendum hlutverk hjá félaginu burtséð frá getu í handknattleik.

Háttvísi á ekki bara við um leikina sjálfa, heldur líka hátterni á öllum viðburðum sem Haukar taka þátt í, umgengni í íþróttahúsum, skólum og matsal og hvernig foreldrar eru í leik og starfi.

Sýnum gott fordæmi og verum félaginu okkar til sóma hvar sem við erum.

Haukar – félagið mitt