Sumaríþróttaskóli Hauka 2026
Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007.
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi.
Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum og hafa allir kennarar skólans mikla reynslu af þjálfun yngri barna.
Lýsing námskeiða:
Lögð er áhersla á mikla hreyfingu á námskeiðunum og er skólinn opinn fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitarmenn.
Móttaka barna verður við aðalinngang Ásvalla og gæsla verður frá kl. 8:00 – 9:00 í handbolta sal.
Morgun námskeið byrja kl. 09:00. Börnin skráð á námskeiðin mæta hjá aðalinngang Ásvalla og þaðan er þeim leiðbeint á rétta staði.
Fyrra nestishlé er kl 10:15-10:45 og eftir hádegi er það frá kl 14:15-14:45.
** Mikilvægt er að senda þau með nesti, óháð því hvort þau séu skráð í hádegismat.
Námskeiðum lýkur kl. 12:00, nema ef viðkomandi iðkandi er í hádegismat.
Seinni parts námskeið byrja kl. 13:00 og er mæting í samkomusalinn á Ásvöllum.
Námskeiði lýkur kl. 16:00.
Starfsfólk Íþróttaskólans munu taka á móti öllum börnum og sjá til þess að allir komist á réttan stað.
Skráningar:
Skráningar á öll námskeið fara fram í gegnum Abler, hægt er að ýta á viðkomandi vefsíðu til að flytja þig á réttan stað. Skráningar opna 4.maí:
https://www.sportabler.com/shop/haukar/sumarskoli
Hagnýtar upplýsingar:
** Verð á námskeið er 9.000 kr og 15.000 kr fyrir allan daginn
** Hádegismatur kostar 7.000 kr
** Aðeins verða boltagreinar í boði hjá félaginu í sumar að undanskildum tveimur vikum
** Senda börn með nesti, 10.15-10.45 og 14.15-14.45 er borðað.
** Lokað 21.júlí-4.ágúst
** Aðeins námskeið í boði fyrir hádegi 6.júlí-17.júlí
** Öll námskeið eru vikunámskeið
Netfang: aronrafn@haukar.is
Sími Íþróttaskóla Hauka: 788-9200.
Dagskrá fyrir sumarið 2026
| Vika | Leikjaskólinn 2014-2019 |
Fótboltaskólinn 2014-2019 |
Körfuboltaskólinn 2014-2019 |
Handboltaskólinn 2014-2019 |
|
| 15-19. júní (4 dagar) | kl 9-12 | kl 13-16 | kl 13-16 | ||
| 22-26. júní | kl 9-12 | kl 13-16 | kl 13-16 | ||
| 29.júní-3. júlí | kl 9-12 | Kl 13-16 | Kl 13-16 | ||
| 7-11. júlí | Kl 9-12 | Ekki í boði | Ekki í boði | Ekki í boði | |
| 14-18. júlí | kl 9-12 | Ekki í boði | Ekki í boði | Ekki í boði | |
| 20-24. júlí (lokað) | Lokað | Lokað | Lokað | Lokað | |
| 27.júlí-31.júlí (lokað) | Lokað | Lokað | Lokað | Lokað | |
| 4-7. ágúst (4 dagar) | Kl 9-12 | Kl13-16 | Kl 13-16 | ||
| 10-13. ágúst (4 dagar) | kl 9-12 | kl 13-16 | kl 13-16 |
Eftirfarandi skólar eru í boði:
Fótbolta-, Handbolta- og Körfuboltaskóli fyrir 6-12 ára (2014-2019)
Boltaskólar handknattleiks-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeilda Hauka eru bæði fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í sinni boltagrein
og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilað í ýmsum útfærslum.
Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.
Leikjaskóli fyrir 6-12 ára (2014-2019)
Leikjaskólinn er námskeið sem verður einungis í boði í tvær vikur 7.júlí-11.júlí og 13.júlí -17.júlí.
Í leikjaskólanum þá er áhersla lögð á að hafa gaman, eignast vini og að allir fá að njóta sín. Farið verður í sundferðir, hjólatúra, ratleiki, tarzanleiki og fleira. Einnig verða nokkrir dagar í sumar þar sem hið fræga draugahús Hauka verður sett upp en draugahúsið hefur verið einn vinsælasti liður sumaríþróttaskólans síðustu ár.
Dagskrá fyrir leikjaskólann verður alltaf gefin út í vikunni á undan svo við getum aðlagað dagskránna að veðurspánni.
Heitur matur í hádeginu frá Skólamat er í boði dagana 15.júní-11.júlí og 4-13.ágúst.
Kaupa þarf sérstaklega hádegismatinn í Abler. Hádegismaturinn kostar 7.000 kr
Haukar – Félagið mitt
