Ágæti stuðningsmaður – Áfram gakk!

Árið 2020 er að baki, ár sem hefur reynst íþróttahreyfingunni hvar sem er í heiminum þungt í skauti. Við hjá Handknattleiksdeild Hauka höfum ekki farið varhluta af þessu ástandi sem á sér ekki fordæmi. Ekki þýðir þó að dvelja of lengi við það sem er að baki, heldur líta bjartari augum á þær áskoranir og verkefni sem við okkur blasir á árinu 2021.

Mikil óvissa er með hvernig deildinni tekst að afla tekna á árinu, og verður því áfram opin leið til að styrkja rekstur handknattleiksdeildarinnar, þar á meðal útsendingar á HaukarTV-handbolti, með frjálsum framlögum.
Við ætlum okkur með stuðningi velunnara að vera í fremstu röð í handboltanum hér á landi, nú sem endranær.🤾‍♀️🤾🏻‍♂️