Frosti Brynjólfsson til Hauka.

Frosti Brynjólfsson hefur samið við knattspyrnudeild Hauka og mun spila fyrir félagið til næstu tvö árin.

Frosti er 20 ára gamall sóknarmaður og er frá Grenivík. Hann spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með Magna árið 2016 og á 39 leiki í öllum deildum. Frosti hefur einning spilað með KA í Pepsí deildinni.

Frosti er fljótur og sterkur leikmaður og mun hann styrkja Hauka gríðarlega. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagna nýjum samningi við Frosta og býður hann hjartanlega velkominn í félagið.

Frosti Brynjólfsson – Ljósmynd: Hulda Margrét