Hafdís Erla Gunnarsdóttir semur við knattspyrnudeild Hauka

Hafdís Erla Gunnarsdóttir hefur samið til tveggja ára við knattspyrnudeild Hauka.

Hafdís Erla er 24 ára  markmaður en hún kom til félagsins á miðju tímabili í fyrra.
Hafdís hefur leikið með liðum eins og FH og Aftureldingu og á 24 leiki í efstu og næst efstu deild, hún á einnig 13 landsleiki í U-16 og U-17 ára landsliðum Íslands.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagna nýjum samningi við Hafdísi Erlu.

Hafdís Erla – Ljósmynd: Hulda Margrét