Þorleifur Óskarsson nýr aðstoðar- og markmannsþjálfari kvennaliðsins.

Þorleifur Óskarsson og knattspyrnudeild Hauka hafa gert með sér samning þess efnis að Þorleifur verði aðstoðar- og markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna og hefur hann nú þegar hafið störf.

Þorleifur hefur töluverða reynslu af þjálfun; sem aðal þjálfari, aðstoðarþjálfari og markmannsþjálfari hjá fjölda liða, nú síðast sem markmannsþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka bindur miklar vonir við samstarf þeirra Þorleifs og Guðrúnar Jónu fyrir komandi keppnistímabil og býður Leifa innilega velkominn í félagið.

Þorleifur Óskarsson – Ljósmynd: Hulda Margrét