Aron Freyr hefur endurnýjað samning sinn við Hauka

Aron Freyr hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka til tveggja ára.

Aron Freyr, eða Basti eins og hann er kallaður innan liðsins, er vel kunnugur á Ásvöllum en hann hefur spilað með Haukum síðustu þrjú árin og á 48 leiki með Haukum og skorað 6 mörk.

Aron er 24 ára og er með mikla reynslu af mfl. Hann hefur spilað 134 leiki og 17 mörk í mfl. Getur leyst flestar stöður fremst á vellinum ásamt hægri bakvörð. Á fjóra landsleiki með U19 og U21 árs landsliðum Íslands.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Aron Frey og bindur miklar vonir við hann á komandi tímabili.

Áfram Haukar

Ljósmynd: Hulda Margrét

Aron Freyr – Ljósmynd: Hulda Margrét