Óliver Steinar Guðmundsson í æfingahóp U17 ára í knattspyrnu.

Davíð Snorri Jónasson landsliðsþjálfari hefur valið 26 leikmenn í til æfinga 1-3 febrúar næstkomandi og er Óliver Steinar í hópnum.

Óliver Steinar er fæddur 2004 og er leikmaður meistaraflokks Hauka. Stór og sterkur miðjumaður sem kom inná í sínum fyrsta meistaraflokksleik árið 2020.
Fyrir á Óliver að baki tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands.

Hér má sjá tilþrif frá honum frá sumrinu 2020: https://www.youtube.com/watch?v=kyM6m7ClI3w&t

Knattspyrnudeild Hauka óskar Óliver innilega til hamingju með valið og óskar honum góðs gengis.

Óliver Steinar – Ljósmynd: Hulda Margrét