Hafnarfjarðarmótið framundan

Eftir gott æfingamót í síðustu viku tekur meistaraflokkur karla þátt í öðru æfingamóti í þessari viku þegar Hafnarfjaðarmótið 2021 fer fram. Mótið er að þessu sinni haldið í Kaplakrika og eru leikirnir eins og hér segir: Þriðjudagurinn 24. ágúst 18:00 Haukar-Stjarnan Fimmtudagurinn 26. ágúst 20:00 Haukar-Afturelding Laugardagurinn 28. ágúst 13:00 FH-Haukar Frítt er inn og […]

Haukar komnir í úrslit Ragnarsmótsins

Meistaraflokkur karla í handbolta unnu í kvöld flottan sigur á ÍBV í öðrum leik sínum í Ragnarsmóti karla. Með sigrinum tryggðu þeir sér sæti í úrslitaleik mótsins á móti Fram. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, kl. 16:00. Eins og fyrr segir eru allir leikir mótsins á Selfossi og er frítt inn en leikirnir eru […]

Ragnarsmótið fer af stað

Það er komið að fyrstu leikjunum hjá meistaraflokki karla í handbolta þetta undirbúningstímabilið. En í gær hófst Ragnarsmót karla á Selfossi og leika Haukar sinn fyrsta leik í kvöld þegar þeir mæta Stjörnunni kl. 18:30. Stjarnan hóf leik í mótinu í gær þegar þeir töpuðu fyrir ÍBV en Haukar hefja sem fyrr segir leik í […]

Haukastrákar á EM í Króatíu

U19 ára landslið Íslands í karlaflokki leikur um þessar mundir í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Króatíu. Þar á meðal eru 2 Haukastrákar en það eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson og Kristófer Máni Jónasson. Báðir eru þeir hluti af meistarflokki Hauka ásamt því að vera lykilmenn í U liði Hauka á síðasta tímabili. Einnig […]

Haukar til Kýpur

Í dag var dregið í Evrópubikarkeppninni fyrir veturinn 2021/2022 þar sem strákanir okkar í handboltanum hefja leik í 2 umferð. Andstæðingurinn að þessu sinni er Parnassos Strovolou frá Kýpur og fara leikirnir fram dagana 16-17 og 23-24 október og drógust Haukar til að eiga seinni leikinn á heimavelli. Parnassos Strovolo lék einnig í þessari keppni […]

Andri Scheving lánaður til Aftureldingar

Markvörðurinn Andri Sigmarsson Scheving hefur verið lánaður til Aftureldingar þar sem hann mun leika á næsta timabili en Andri framlengdi samning sinn við Hauka fyrr á árinu. Andri Scheving sem er 21 árs hefur þrátt fyrir það verið annar af markvörðum meistaraflokks karla undanfarin 4 ár ásamt því að vera aðalmarkvörður U-liðs Hauka þar sem […]

Lokahóf Handknattleiksdeildar haldið með pomp og prakt

Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka var haldið með pomp og prakt á Ásvöllum í gær þar sem lokum á skemmtilegum en jafnframt einkennilegum handboltavetri var fagnað með leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum liðanna okkar. Eins og venjan er völdu þjálfara þá leikmenn sem þóttu skara fram úr í vetur. Hjá meistaraflokki kvenna var Elín Klara valin efnilegasti leikmaðurinn, […]

Úrslitaleikur á föstudag – MIðasala hafin

Meistaraflokkur karla í handbolta leikur á föstudag seinni úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn þegar Valur kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Strákarnir þurfa að vinna upp 3 marka forskot Vals sem unnu fyrri leikinn 32 – 29 en samalögð úrslit úr leikjunum 2 gilda. Opnað hefur verið fyrir forskráningu fyrir Hauka í horni og iðkendur handknattleiksdeildar […]

Úrslitaeinvígið hefst á þriðjudag

Meistaraflokkur karla í handbolta er kominn í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á Stjörnunni í undanúrslitum. Í úrslitunum mæta þeir Val, sem vann ÍBV í sínu einvígi, og fer fyrri leikurinn fram næsta þriðjudag, 15, júní, kl. 19:30 í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Seinni leikurinn fer fram á Ásvöllum föstudaginn 18. júní kl. 19:30 þar sem […]

Flottur árangur hjá yngri flokkum Hauka

Það var mikið um að vera hjá ungmennum okkar í gær þegar úrslitaleikir yngri flokka fóru fram að Varmá en Haukar áttu þrjá flokka í úrslitum. 4. flokkur karla eldri riðu á vaðið þegar þeir mættu Fram í hörkuleik þar sem Haukastrákarnir voru með frumkvæðið nánast allan leikinn en Fram var þó alltaf skammt undan. […]