Ragnarsmótið fer af stað

Það er komið að fyrstu leikjunum hjá meistaraflokki karla í handbolta þetta undirbúningstímabilið. En í gær hófst Ragnarsmót karla á Selfossi og leika Haukar sinn fyrsta leik í kvöld þegar þeir mæta Stjörnunni kl. 18:30.

Stjarnan hóf leik í mótinu í gær þegar þeir töpuðu fyrir ÍBV en Haukar hefja sem fyrr segir leik í kvöld kl 18:30. Allir leikir mótsins fara fram í Hleðsluhöllinni á Selfossi og eru allir leikirnir sýndir beint á Selfoss TV á YouTube. Það er því um að gera fyrir handboltaþyrst Haukafólk að fylgjast með en núna fer allt að fra á fullt í handboltanum. Áfram Haukar!