Haukagolfmótið 2021

Nú er komið að því Haukagolfarar nær og fjær. Haukamótið í golfi verður haldið á golfvellinum á Hvaleyri 17. september nk. Opnað verður fyrir skráningu þátttakenda viku fyrir mótið eða þann 10. september. Sú breyting verður núna að greiða verður þáttökugjald kr. 5.500 um leið og skráning fer fram. Eins og frá öndverðu verður keppt um Rauða jakkann (flestir punktar), Gula boltann (í flokki 55 ára og eldri Haukafélaga), og um Haukabikarinn í höggleik. Vonum að sjálfsögðu að verðlaunaafhending og útdráttur úr skorkortum verði með hefðbundnum hætti að móti loknu. Þetta golfmót Hauka er það 32. í röðinni og ber uppá 90 ára afmælisár Knattspyrnufélagsins Hauka.

Aldurstakmark er 18 ár og eins og fram hefur komið er þátttökugjald kr. 5.500,00.

Áfram Haukar.