Haukastrákar á EM í Króatíu

U19 ára landslið Íslands í karlaflokki leikur um þessar mundir í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Króatíu. Þar á meðal eru 2 Haukastrákar en það eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson og Kristófer Máni Jónasson.

Báðir eru þeir hluti af meistarflokki Hauka ásamt því að vera lykilmenn í U liði Hauka á síðasta tímabili. Einnig léku þeir með 3. flokki karla sem varð Íslandsmeistari á síðasta tímabili.

Nú þegar eru 2 leikir búnir hjá strákunum en þeir eru búnir að tapa einum og vinna einn en sigurleikurinn kom gegn Ítalu þar sem Guðmundur Bragi var meðal annars markahæstur í leiknum. Næsti leikur strákana er á sunnudag þegar þeir mæta Serbíu kl. 12:30 en hægt er að horfa á alla leiki mótins á https://ehftv.com/home.

Haukar óska strákunum góðs gengis í komandi leikjum. Áfram strákar og áfram Ísland!