Mfl. kk: Haukar – Selfoss

Strákarnir fá Selfyssinga í heimsókn á morgun, þriðjudag, á Ásvelli kl. 19:30. Að venju er frítt fyrir iðkendur og Hauka í Horni en fyrir aðra er miðasala í appinu „Stubbur“ og á Ásvöllum fyrir leik. Áfram Haukar!

U-20 Haukastrákar kallaðir til æfing

Sex Haukastrákar hafa verið kallaðir til æfinga hjá U-20 landsliði Íslands helgina 2-3 október. Þetta eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Kristófer Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson, Jakob Aronsson, Róbert Örvarsson og Þorfinnur Máni Björnsson. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir æfingaleik við Dani í landsliðsvikunni í byrjun nóvember. Við óskum strákunum góðs gengis á æfingunum!

Handbolti: Samantekt helgarinnar

Það var nóg að gera í handboltanum um helgina eins og svo oft áður en bæði meistaraflokks lið Hauka og U-lið karla áttu stórleiki.. Mfl. karla fóru í Mosfellsbæinn á föstudagskvöldinu og léku gegn Aftureldingu. Leikurinn endaði með jafntefli 26-26 en staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Aftureldingu. Mörk: Stefán Rafn Sigurmannsson 8/5, Adam Haukur Baumruk […]

Handboltahelgi framundan

Það er alltaf mikið í gangi hjá handboltanum í Haukum og næstkomandi helgi er engin undantekning. Krefjandi leikir framundan og við hvetjum Haukafólk til að koma á völlinn og styðja við liðin. Mfl. kk: Afturelding – Haukar Föstudaginn 24. sept kl. 19:30 í Varmá Mfl. kvk: Haukar – Fram Laugardaginn 25. sept kl. 16:30 á […]

TVÍHÖFÐI Á LAUGARDAGINN

Það verður sannkölluð handboltaveisla á Ásvöllum á morgun, laugardag, en bæði lið meistaraflokkana hefja leik í Olís deildinni ´21-´22. Stelpurnar taka á móti HK og hefst leikurinn kl. 16:00 en strákarnir fylgja svo strax á eftir kl. 18:00 þegar þeir taka á móti Fram. Það verður því mikið um að vera, Dominos pizzur og sjoppan […]

EVRÓPUKEPPNI MFL. KK. HAUKA

Meistaraflokkur karla í handbolta tekur þátt í EHF European Cup og mun leika gegn liði Parnassos Strovolou í heimalandi þeirra, Kýpur, dagana 16 og 17. október næstkomandi. Lið Parnassos Strovolou hefur tekið þátt í Evrópukeppni síðastliðin 4 ár. Haukar gerðu samkomulag við liðið um að spila báða leikina úti og mun liðið ferðast frá Íslandi 14. […]

Coca Cola vika framundan

Það er stór vika framundan hjá handboltanum en bæði meistaraflokksliðin keppa í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Strákarnir hefja leik á fimmtudaginn, 9. september, í Kaplakrika gegn erkifjendum okkar í FH og hefst leikurinn kl. 20:30.   Stelpurnar spila gegn ÍR, föstudaginn 10. september kl. 19:30 í Austurbergi. Við hvetjum allt okkar Haukafólk til […]

Kristófer Máni lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað Kristófer Mána Jónasson tímabundið til Aftureldingar en Kristófer sem er 19 ára á árinu hefur verið einn af hægri hornamönnum meistaraflokks karla undanfarin ár. Kristófer hefur einnig leikið með U liði Hauka síðustu tímabil þar sem hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins. Þar að auki varð Kristófer Máni Íslandsmeistari með 3. […]

Guðmundur Bragi lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað tímabundið hinn efnilega Guðmund Braga Ástþórsson til Aftureldingar. Guðmundur Bragi hefur verið að fá fleiri og fleiri tækifæri hjá meistaraflokki Hauka ásamt því að vera lykilmaður í U-liði félagsins og á síðasta tímabili var hann valinn efnilegasti leikmaður Grill 66 deildarinnar. Einnig varð hann Íslandsmeistari með 3. flokki félagins þar sem hann […]