Björgvin Páll yfirgefur Hauka eftir leiktímabilið

Björgvin Páll

Björgvin Páll Gústavsson hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við félagið. Samkvæmt núverandi samningi Björgvins við félagið þá vinnur Björgvin hálft starf hjá félaginu sem leikmaður, markmannsþjálfari og í markaðsstörfum. Björgvin Páll vill geta haft handboltann sem fullt starf til að geta sinnt fjölskyldu sinni betur og hefur því leitað á önnur mið.

Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka: „Við sýnum Björgvini fullan skilning á hans stöðu. Við munum í sameiningu gera allt til að ná sem bestum árangri í vetur og ná okkar markmiðum þannig að við getum kvatt sáttir.“

Björgvin Páll Gústavsson: „Þetta var gríðarlega erfið ákvörðum en eitthvað sem ég þarf að gera. Ég og fjölskyldan mín erum með okkar bækistöð inn í Reykjavík. Ég vil geta haft meiri tíma fyrir fjölskylduna og verið í félagi þar sem börnin mín alast upp þannig að við getum átt það saman. Ég er ótrúlega þakklátur Haukum fyrir þeirra fagmennsku og skilning en þessi ákvörðun hefur lítið með Hauka að gera enda hefur félagið ávallt stutt vel við bakið á mér í einu og öllu, en það er einmitt þess vegna sem að þessi ákvörðun var svona erfið. Minn draumur er að geta skilið sáttur við liðið í sumar og að við sem lið verðum þá búnir að koma Haukum á þann stall sem þeir eiga heima á.