Guðmundur Bragi lánaður til Aftureldingar

Haukar hafa lánað hinn efnilega Guðmund Braga Ástþórsson til Aftureldingar. Guðmundur Bragi hefur verið að fá fleiri og fleiri tækifæri hjá meistaraflokki Hauka ásamt því að vera lykilmaður í U-liði félagsins þar sem hann er einn markahæsti leikmaður Grill 66 deildarinnar.

Sökum meiðsla hjá leikmönnum sínum sóttist Afturelding eftir því að fá Guðmund að láni og verður hann hjá félaginu næsta mánuðinn.

Guðmundur mun þar öðlast dýrmæta reynslu og stórt hlutverk hjá liði í toppbaráttu Olís deildar karla en hann framlengdi nýlega samning sinn við Hauka.

Haukar óska Guðmundi góðs gengis í Mosfellsbænum og hlakka til að fá hann aftur reynslunni ríkari.