Lykileikmenn endurnýja samninga við Hauka

Birta Lind

Birta Lind er 21 árs vinstri hornamaður sem er uppalin hjá félaginu og hefur á síðustu árum stigið mikið upp og er hún ein af mikilvægustu leikmönnum liðsins þrátt fyrir ungan aldur. Það sem liðið er af tímabilinu hefur Birta Lind verið iðin við markaskorun  og með markahæstu leikmönnum liðsins.

Ragnheiður

Ragnheiður er 26 ára reynslumikill hægri hornamaður sem er uppalin hjá Haukum. Hún hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Hauka síðustu tímabil. Ragnheiður spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk kvenna aðeins 16 ára gömul og því með reynslu mestu leikmönnum liðsins.

Rakel er 26 ára línumaður sem kom til Hauka árið 2017 og hefur hún verið lykilmaður á báðum endum vallarins. Rakel  hefur staðið sem klettur í miðju varnar Hauka og er öflugur liðsmaður sem gefur mikið af sér inná vellinum.

Stjórn handknattleiksdeildar Hauka fagnar þessum nýju samningum og bindur miklar vonir við stelpurnar á komandi árum.

Rakel