Sara Odden áfram í herbúðum Hauka

Sara Odden

Sænsk-norska skyttan Sara Odden hefur framlengt samning sinn við Hauka. Sara kom til lið við Hauka frá Svíþjóð haustið 2019 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan. Sara sem er 25 ára hefur látið mikið til sín taka á tímabilinu og er markahæsti leikmaður liðsins ásamt því að vera sterk í miðju varnarinnar.

Haukar hafa lagt mikla áherslu að halda Söru ásamt öðrum lykilmönnum áfram í félaginu til að styðja við ungar og mjög efnilegar stelpur sem nú eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki og eflaust hjálpa liðinu mikið í framtíðinni.

Mikil ánægja er meðal Haukafólks að samkomulag hafi náðst enda frábær leikmaður og góður félagi. Áfram Haukar!