Andri Scheving framlengir við Hauka

Andri hefur framlengt við Hauka

Andri Sigmarsson Scheving hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Hauka sem gildir til næstu 3 ára. Andri Scheving sem er 21 árs hefur þrátt fyrir það verið annar af markvörðum Hauka undanfarin 4 ár ásamt því að vera aðalmarkvörður U-liðs Hauka þar sem hann hefur verið kosinn besti markvörður Grill 66 deildarinnar. Andri sem hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands er með 32% hlutfalls markvörslu í Olís deildinni það sem af er tímabili.

Það er mikið gleðiefni fyrir Hauka að Andri verði áfram hjá Haukum næstu árin og ljóst að markmannsstaðan verður vel mönnuð næstu árin.