Haukar semja við Ragnar Hermannsson

Frá vinstri: Aron Kristjánsson framkvæmdastjóri Hkd. Hauka, Ragnar Hermannsson og Valdimar Óskarsson varaformaður Hkd. Hauka.

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Ragnar Hermannson um að koma inn í þjálfarahóp deildarinnar. Ragnar mun sinna sérþjálfun hjá deildinni en mun meðal annars vera einn af þjálfurum á Afrekslínu félgsins ásamt því að sinna einstaklingsþjálfun fyrir iðkendur deildarinnar.

Ragnar Hermannsson þarf vart að kynna fyrir Haukafólk enda er hann margreyndur þjálfari hér á landi í meistaraflokki. Segja má að Ragnar sé að snú til baka en hann þjálfaði meistaraflokk kvenna félagins ár árunum 2000 og 2001. Undir hans stjórn var liðið meðal annars Íslands- og deildarmeistarar.

Það er ánægjuefni fyrir deildina að fá reyndan og góðan þjálfara sem mun án efa styrkja þjálfarahóp deildarinnar en Ragnar mun miðla af reynslu og þekkingu sinni til iðkenda deilarinnar.