8. flokkur drengja Íslandsmeistarar

8. flokkur drengja Íslandsmeistari 2021. Þjálfari Emil Barja

Um helgina urðu Haukar Íslandsmeistarar í 8.flokki drengja. Strákarnir töpuðu aðeins einum leik í riðlinum en Breiðablik unnu þá á flautukörfu eftir mikil villuvandræði í Haukaliðinu. Strákarnir unnu svo Stjörnuna, Skallagrím og Ármann.

Lokamótið endaði endaði þannig að Haukar, Stjarnan og Breiðablik voru öll jöfn á toppnum en vegna innbyrðis viðureigna voru Hauka strákarnir á toppnum og urðu Íslandsmeistarar.
Til hamingju strákar 🏆🏀🏆
Efri röð: Emil Barja (þjálfari), Felix, Alexander, Bjarki, Harry, Leon
Neðri röð: Frosti, Kristófer Kári, Kristófer Breki