Haukamótið í körfubolta verður haldið dagana 20.-21. janúar 2024 í íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum.

Mótið er fyrir alla krakka í minnibolta.

Hjá 8-10 ára eru fjórir leikmenn inn á í einu og leiktíminn er 2×10 mínútur.
Hjá 6-7 ára eru þrír leikmenn inn á í einu og leiktíminn er 1×10 mínútur.

Verðið á mótið er 3500 krónur á leikmann og allir fá verðlaunapening að móti loknu.

Skráning er á korfuboltamot@haukar.is og skráningafrestur er til 12. janúar.