Lára Mist spilar með Haukum í sumar

Kvennalið knattspyrnufélag Hauka fékk flottan liðstyrk fyrir sumarið, en Lára Mist Baldursdóttir kemur á láni frá Stjörnunni. Lára er fædd 1998, spilar miðju og hefur komið við sögu í síðustu þremur leikjum Hauka.

Knattspyrnufélagið fagnar komu Láru Mistar en hún þekkir vel til okkar á Ásvöllum þar sem hún kom einnig á lán árið 2019 og spilaði þá 8 leiki í Inkassodeildinni með mfl kvk.

Mynd: Hulda Margrét

Lára Mist

Lára Mist – Mynd: Hulda Margrét