Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Lokahóf HSÍ – Haukar sigursælir

    Lokahóf HSÍ var haldið á Broadway í gærkvöldi. Þar var kynnt val leikmanna og þjálfara á þeim bestu á keppnistímabilinu. Má segja að Haukar hafi verið sigurvegarar kvöldsins. Fyrstu verðlaun kvöldsins voru Hauka en það var Unglingabikar HSÍ. Hann er veittur því félagi sem stendur best að unglingamálum í handknattleik á ári hverju. Frábært fyrir…

  • Nýir Haukar í Landsliðshópinn

    Guðmundur Þ Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið 23 leikmenn til æfinga fyrir næstu verkefni. Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Conversano Roland Eradze, Valur Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar Hornamenn og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson, TUSEM Essen Logi Geirsson, FH Þorkell Magnússon, Haukar Bjarni Fritzson, ÍR Einar Örn Jónsson,Wallau Massenheim Sigfús Sigurðsson, SC Magdeburg Róbert Sighvatsson , HSG Wetzlar Róbert…

  • Bikarinn kominn heim

    Það fór sæluhrollur um margan Haukamanninn þegar leikmenn Hauka hlupu hönd í hönd inná völlin í upphafi leiks í gær. Þetta rifjaði upp góða sigurtíma og margir hugsuðu og vonuðu “þeir vinna – við förum með bikarinn heim í kvöld” Strákarnir okkar mættu tilbúnir í slaginn, Bjarni Frosta varði fyrsta skot ÍR-inga og Ásgeir Örn…

  • Haukar-ÍR 3.leikur

    Okkar menn unnu stórsigur á ÍR á Ásvöllum í dag 34-22, þvílík afgreiðsla. Það tók strákana smá tíma að komast í gang, gestirnir byrjuðu betur 1-3, 2-5, 6-9 en þá vöknuðu okkar menn, jöfnuðu 9-9 og náðu yfirhöndinni 13-10. Í hálfleik var staðan 15-12 og útlit fyrir spennandi síðari hálfleik. En annað kom á daginn,…

  • Haukar – ÍR

    Þá er það leikur númer 3. Það verða allir að mæta á morgun og styðja við bakið á strákunum okkar sem lentu illa í því á fimmtudag. Nú er lag og við sýnum okkar bestu hliðar á morgun. Allir að mæta snemma eins og alltaf og verða vitni að sýningunni.

  • ÍR-Haukar Leikur nr. 2

    Strákarnir okkar töpuðu í kvöld 24-23. Staðan var 23-23 þegar um hálf mínúta var eftir og skoruðu heimamenn síðasta markið úr vítakasti eftir langa, langa sókn. Leikurinn var spennandi allan tímann, nokkuð grófur á köflum og gat sigurinn lent báðu megin. Tap í kvöld er staðreynd en eins og máltækið segir “enginn má við margnum”…

  • Haukar-ÍR – Frábær sigur

    Glæsilegt var það hjá strákunum, er þeir sigruðu ÍR 25-22 á Ásvöllum í kvöld og náðu þar með forystunni í einvíginu. Haukar skoruðu fyrsta markið en gestirnir komust svo yfir 1-3 og 2-5. Þá kom glæsilegur kafli hjá okkar mönnum sem skoruðu níu mörk á móti einu og staðan orðinn 11-6 og Haukar komnir með…