Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-Fram 8-liða úrslit mfl.ka.

    Talandi um glæsilegt ………..Strákarnir okkar voru svo sannarlega mættir á Ásvelli í dag þegar þeir gjörsigruðu Fram 43-27. Gestirnir sáu aldrei til sólar á móti geysisterku liði okkar manna. Það var greinilegt að strákarnir komu mjög vel stemmdir til leiks og sýndu hversu öflugir þeir geta verið. Vörnin var firnasterk og markvarslan góð og skilaði…

  • 4.flokkur karla B Íslandsmeistarar

    B-lið 4.flokks karla varð í dag, sunnudag, Íslandsmeistarar B eftir sigur á Selfossi á Seltjarnarnesinu. Haukastrákarnir byrjuðu vel og voru yfir til að byrja með. Selfyssingar jöfnuðu og komust svo yfir og héldu þeirri forystu nánast allan leikinn. Þegar um 5 mínútur voru eftir af seinni hálfleik voru Selfyssingar 3 mörkum yfir en Haukastrákarnir náðu…

  • Stjarnan-Haukar 4-liða úrslit kvenn

    Glæsilegur sigur á afmælisdegi Hauka.Frábær stórsigur 16-24 hjá stelpunum okkar á Stjörnunni í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum. Þær kláruðu fyrsta leikinn “létt” á miðvikudaginn og ekki var þessi síðri. Staðan í hálfleik var 7-16 og var fyrri hálfleikur hreint út glæsilegur. Þær stóðu vörnina eins og klettur og flest sem fór í gegn…

  • 4.flokkur karla B í úrslit

    4.flokkur karla, B-lið, komst í dag í úrslit B-úrslita B-liða með því að leggja UMFA 2 af velli með 16 mörkum gegn 15. Haukastrákarnir hafa oft leikið betur en í dag og var fyrri hálfleikurinn mjög lélegur. Staðan var 7-7 í hálfleik eftir að Haukar höfðu jafnað úr víti eftir venjulegan leiktíma. Aðeins 4 leikmenn…

  • Fram-Haukar 8-liða úrslit mfl.ka.

    Glæsilegur sigur í löngum leik. Fyrri hálfleikur var ekki mjög ólíkur fyrri leiknum á Ásvöllum en samt töluvert skárri og því var jafnræði með liðunum framan af þó Framarar hefðu yfirleitt frumkvæðið og náðu smá forskoti í lok hans 14 – 10. Í seinni hálfleik tóku okkar strákar nokkrar góður rispur og hefðu vel getað…

  • Fjörið heldur áfram

    Það verður nóg að gera hjá okkur næstu daga. 8-liða úrslitin byrja hjá strákunum á morgun og 4-liða úrslit hjá stelpunum á miðvikudag. Við hvetjum alla til að taka þátt í fjörinu með okkur og mæta á leikina og styðja við bakið á liðunum okkar. 8-liða úrslit hjá mfl.karla: Haukar-Fram þriðjudaginn 8. apríl kl. 19.15…

  • Myndir

    Myndir af bikarúrslitadeginum hjá stelpunum og leiknum í gær gegn ÍR hjá strákunum eru komnar inn.Í leiðinni vil ég benda á að þeir sem skrá sig á hjá okkur geta sent okkur fréttir. Upplagt væri t.d. fyrir yngri flokkana að láta vita af sér þar.