Haukar-Fram 8-liða úrslit mfl.ka.

Talandi um glæsilegt ………..Strákarnir okkar voru svo sannarlega mættir á Ásvelli í dag þegar þeir gjörsigruðu Fram 43-27. Gestirnir sáu aldrei til sólar á móti geysisterku liði okkar manna. Það var greinilegt að strákarnir komu mjög vel stemmdir til leiks og sýndu hversu öflugir þeir geta verið. Vörnin var firnasterk og markvarslan góð og skilaði þetta slatta af harðaupphlaupum. Ekki er hægt að kvarta yfir sókninni en nýtingin var yfir 80% sem er alveg frábært.Haukar skoruðu fyrsta markið en gestirnir jöfnuð strax og komust svo yfir 2-3 en eftir að okkar menn jöfnuðu 3-3 litu þeir aldrei til baka og keyrðu yfir gestina, 8-4, 9-5, 17-5 og 18-7 í hálfleik eða ellefu marka munur. Í seinni hálfleik varð munurinn mestur nítján mörk 39-20 og 40-21 og endað leikurinn með sextán marka mun !!! Ótrúlegir yfirburðir okkar manna. Erfitt er að taka einhvern einn út sem besta mann í mjög jöfnu og frábæru Haukaliði, sem spilaði nánast óaðfinnanlega, sama hver kom inná og greinilegt að þegar strákarnir okkar spila svona þá er ekkert lið sem stoppar þá.Markahæstir voru Halldór með 11 mörk og Aron með 9.