Fram-Haukar ESSÓ deild kvenna
Það er ekki að spyrja að stelpunum okkar, þær unnu auðveldan og glæsilegan sigur á Fram í kvöld 19-34.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Það er ekki að spyrja að stelpunum okkar, þær unnu auðveldan og glæsilegan sigur á Fram í kvöld 19-34.
Minnum alla á leikinn hjá Gróttu/KR á sunnudaginn kl.20:00 við sænska liðið Savehof. Þeir töpuðu leiknum úti og þurfa því á stuðningi allra að halda til að komast áfram í 4-liða úrslit keppninnar. Heimasíða {Tengill_14}
Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur á Fylki/ÍR á Ásvöllum í kvöld 36-20. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en svo komu sjö í röð frá okkar stelpum og staðan orðin 7-1 og nokkuð ljóst hvert stefndi. Haukastelpurnar tóku völdin og sýndu hver réði inná vellinum. Taflan sýndi tölur eins og 11-3, 18-6 og 19-8 í hálfleik og…
Tvö stig í pottinn er strákarnir tóku á móti Þór á Ásvöllum í kvöld. Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti, 3-0 en gestirnir jöfnuðu 3-3. Þá tóku strákarnir okkar leikinn í sýnar hendur og spiluðu fantavel, 7-3, 15-9 og í hálfleik var staðan 16-10. Vörnin var góð og markvarslan fín og eins gekk sóknin fínt….
Strákarnir höfðu það í Digranesi í kvöld er þeir heimsóttu nýkrýnda bikarmeistara HK og endaði leikurinn 28-31. Okkar menn byrjuðu leikinn ágætlega og voru yfir en heimamenn jöfnuðu og náðu 2ja til 3ja marka forskoti sem þeir héldu út hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 19-16. Vörnin var arfaslök hjá okkur og markvarslan samkvæmt því. Greinilegt…
Stelpurnar eru ekkert að gefa eftir, þó ein dolla sé komin í hús. Þær unnu góðan sigur á GróttuKR á Nesinu í kvöld 21-28.
Eins og við söguðum í gær var ætlunin að segja meira frá bikarleiknum hjá stelpunum. Í raun er ekki miklu við að bæta. Stelpurnar okkar voru FRÁBÆRAR og unnu GLÆSILEGAN SIGUR á ÍBV og eru BIKARMEISTARAR 2003. Hvað meira er hægt að segja!!! Leikurinn var hin besta skemmtun, spennan var rafmögnuð og leikurinn í járnum…
Stelpurnar okkar eru BIKARMEISTARAR 2003 eftir glæsilegan sigur 23-22 á ÍBV í Laugardalshöll núna áðan. Frábært stelpur, við höfum alltaf vitað að þið eruð bestar. Til hamingju. Meira um leikinn síðar. (P.S. Myndin er fengin „að láni“ frá mbl.is)
Strákarnir okkar unnu frábæran sigur 31-26 á KA í hörkuleik á Ásvöllum í kvöld. Þó leikurinn væri ekki sem best leikinn var hann frábær skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á Ásvelli. Mikill hraði, spenna, heilmikið um mistök og eins sýndu menn frábær tilþrif, sem sagt skemmtilegur handbolti bæði fyrir leikmenn og…
Nú er bikarhelgin alveg að skella á. Eins og alþjóð ætti að vera ljóst spila stelpurnar okkar í mfl.kvenna við ÍBV kl. 13.00 á laugardaginn í Laugardalshöllinni. Þetta verður án efa hörkuleikur, þar sem tvö af toppliðum landsins mætast. Þessi lið hafa marga hildi háð og öruggt að ekkert verður gefið eftir og spennan verður…