Haukar-Fylkir/ÍR ESSÓ deild kvenna
Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur á Fylki/ÍR á Ásvöllum í kvöld 36-20. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en svo komu sjö í röð frá okkar stelpum og staðan orðin 7-1 og nokkuð ljóst hvert stefndi. Haukastelpurnar tóku völdin og sýndu hver réði inná vellinum. Taflan sýndi tölur eins og 11-3, 18-6 og 19-8 í hálfleik og gáfu þær rétta mynd af yfirburðum okkar liðs. Seinni hálfleikur var svipaður og sá fyrri og sigurinn aldrei í hættu. Bekkurinn kom allur inná og sýndu ungu stelpurnar að framtíðin er björt hjá Haukum.
Markahæst var Nína sem skoraði níu mörk í öllum regnbogans litum og Hanna var með sjö og varla þarf að taka fram að mörg þeirra voru eftir glæsileg hraðaupphlaup að hætti Hönnu.
