Haukar-Þór ESSÓ deild karla
Tvö stig í pottinn er strákarnir tóku á móti Þór á Ásvöllum í kvöld. Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti, 3-0 en gestirnir jöfnuðu 3-3. Þá tóku strákarnir okkar leikinn í sýnar hendur og spiluðu fantavel, 7-3, 15-9 og í hálfleik var staðan 16-10. Vörnin var góð og markvarslan fín og eins gekk sóknin fínt. Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri, strákarnir okkar stjórnuðu leiknum, 19-12, 28-21, 31-23. Seinni hluti hálfleiksins fór í hálfgert rugl, strákarnir misstu einbeitinguna og slökuðu einum of á og gestirnir gengu á lagið og minnkuðu muninn en sigurinn var þó aldrei í hættu.
Frábært að sjá Halldór fyrirliða finna fjölina sína aftur. Hann fór fyrir sínum mönnum og var markahæstur með 10 mörk.
