Haukar-KA ESSÓ deild karla

Strákarnir okkar unnu frábæran sigur 31-26 á KA í hörkuleik á Ásvöllum í kvöld. Þó leikurinn væri ekki sem best leikinn var hann frábær skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á Ásvelli. Mikill hraði, spenna, heilmikið um mistök og eins sýndu menn frábær tilþrif, sem sagt skemmtilegur handbolti bæði fyrir leikmenn og stuðningsmenn.
Leikurinn var nokkuð jafn, okkar menn þó nær alltaf skrefinu á undan. Þeir skoruðu fyrsta markið en gestirnir jöfnuðu 1-1, við gerðum næstu 2 mörk, síðan var jafnt 4-4, og jafnt á öllum tölum í 9-9 en þá náðum við fjögurra marka forskoti 14-10. Staðan í hálfleik var 15-13. Seinni hálfleikur var svipaður, við 1 til 3 mörkum yfir, þar til norðanmenn ná að jafna 25-25 og spennan alveg í hámarki. Okkar menn héldu haus og gott betur, náðu aftur þriggja marka forskoti 28-25 og gáfu enn betur í og kláruðu leikinn með stæl 31-26.
Ásgeir Örn var markahæstur með 8 mörk og gaman að sjá hann mættan aftur til leik eftir erfið veikindi.
Þessi tvö stig voru ansi dýrmæt, komu strákunum í annað sætið og nú er bara að halda áfram.