Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Styttist í þriðja leik

    Nú er að duga eða drepast hjá stelpunum okkar í þriðja leiknum í eyjum á morgun, komnar upp að veggnum fræga. Úrslitin eru samt engan veginn ráðin. Þær eru í sömu sporum og í fyrra, eru 2-0 undir en það eru þrír leikir í boði ennþá og þá ætla stelpurnar okkar að sjálfsögðu að vinna….

  • Haukar – ÍBV

    Minnum á leikinn hjá stelpunum í kvöld gegn ÍBV sem hefst kl. 19:15. á Ásvöllum. Þetta verður örugglega hörkuleikur og ekki síðri en leikurinn útí í eyjum. Nú er skyldumæting hjá öllu Haukafólki og við styðjum við bakið á stelpunum því þær ætla sér ekkert annað en SIGUR. Mætum snemma því leikmannakynningin verður mögnuð.

  • KA-Haukar 4-liða úrslit

    Frábær sigur 32-35 hjá strákunum okkar á KA á Akureyri í dag í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum Íslandsmótsins. Okkar menn byrjuðu af krafti, komust í 2-4 en heimamenn náðu fljótt að jafna 4-4 og komust þá yfir. Annars leiddum við yfirleitt leikinn með 1 til 2 mörkum en KA jafnaði á milli. Í…

  • ÍBV-HAUKAR

    Stelpurnar okkar töpuðu fyrsta leiknum í úrslitarimmunni við ÍBV í Eyjum í dag 29-23. Þær byrjuð leikinn betur komust í 1-4 og voru yfirleitt 1 til 2 mörk yfir en heimamenn náðu að jafna á milli og jafnt var í hálfleik 13-13. Seinni háfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, mikil barátta og mikil…

  • Haukar-KA 4-liða úrslit

    Strákarnir okkar komu vel undan vetri þó það tæki þá smá tíma að átti sig á að sumarið er komið. Þeir unnu öruggan sigur 33-27 á KA í fyrsta leik liðanna í 4-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn var jafn í byrjun, Haukar skoruðu fyrstu tvö mörkin en gestirnir jöfnuðu 2-2 og síðan var jafnt á öllum…

  • Næstu leikir

    Nú eru páskarnir búnir, sumarið að koma og boltinn að fara af stað aftur og því ekki úr vegi að minna á næstu leiki. Við hvetjum alla Hauka til að mæta á leikina og styðja vel við bakið á liðunum okkar. Hvað er betra en mæta með alla fjölskylduna á pallana og “hrista af sér…