Styttist í þriðja leik

Nú er að duga eða drepast hjá stelpunum okkar í þriðja leiknum í eyjum á morgun, komnar upp að veggnum fræga.
Úrslitin eru samt engan veginn ráðin. Þær eru í sömu sporum og í fyrra, eru 2-0 undir en það eru þrír leikir í boði ennþá og þá ætla stelpurnar okkar að sjálfsögðu að vinna. Erfitt verður það, engin spurning um það, en með góðum og öguðum leik er allt hægt og væntanlega mun „veggurinn“ veita stelpunum góðan stuðning.

Eins þurfa stelpurnar á miklum stuðning okkar Hauka að halda og þeir sem ekki komast á leikinn senda að sjálfsögðu góða strauma yfir hafið.