Hvað gerist í kvöld ???

Í kvöld er þriðji leikurinn í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn og spá margra er sú að þetta verði síðasti leikurinn þetta tímabilið. En spá er bara spá og strákarnir okkar vita allt um það. Nú er Valur kominn upp að veggnum fræga og spurning hvernig þeim tekst að höndla það. Strákarnir okkar vita að þeir verða að leggja allt í leikinn til að uppskera sigur og við vitum að það ætla þeir sér að gera en þetta verður rosalega erfitt. Þeir mæta örugglega einbeittir með bros á vör og sína sínar bestu hliðar.

Það er að sjálfsögðu skyldumæting hjá öllum Haukum á Ásvelli en leikurinn hefst kl. 19:15 og hvetjum við alla að mæta tímanlega. Stuðningsmenn mæta líka með bros á vör og styðja strákana af krafti sama á hverju gengur. Við sjáum svo til hverju þetta skilar okkur.

Góða skemmtun. Áfram HAUKAR

Hvað gerist í kvöld ???

Við mætum öll í Breiðholtið í kvöld og hjálpum strákunum að koma með Dolluna heim á Ásvelli.
Vekjum athygli á að leikurinn er kl. 20.00.

Áfram Haukar