Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • SS-Bikarinn

    Haukar unnu góðan bikarsigur á Val á Ásvöllum í gærkvöldi. Þetta var ekta bikarleikur; hraði, spenna, fjör og gaman og ekki síst góður bolti. Leikurinn var jafn til að byrja með, 1-1, 2-2, 3-3, 4-4. Þá sigu Haukar framúr og komust í 9-4 og 11-5. Okkar menn slökuðu aðeins á en Valsmenn bættu í þegar…

  • Haukar-GróttaKR mfl.ka

    Haukastrákarnir unnu GróttuKR 31-25 á Ásvöllum í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-13. Okkar menn áttu í smá basli með gestina, leikurinn var nokkuð jafn í byrjun, við þó yfirleitt 2-3 mörkum yfir. Jafnt var 16-16 og 17-17, en þá sigu Haukar framúr, komust í 27-21 og unnu síðan 31-25.

  • FH-Haukar mfl.kv.

    Haukar unnu stórsigur á FH í Essodeildinni í Krikanum í dag. Staðan í hálfleik var 10-13 og í seinni hálfleik tóku stelpudruslurnar okkar völdin á vellinum og unnu frábæran sigur 19-29. Markahæstar voru Nína með 9 og Thelma og Brynja voru með 5 hvor.

  • Aðalfundurinn

    Aðalfundur handknattleiksdeildar var haldinn í dag. Gekk hann vel fyrir sig, þrátt fyrir að flestir herramenn væru lúnir eftir erfiði gærkvöldsins. Ekki var mjög fjölmennt og engin hallarbylting var gerð. Þorgeir Haraldsson var einróma kosinn formaður áfram. Eins gáfu allir sem í stjórn voru, kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa og hlutu þeir allir kosningu.

  • Helgin framundan

    Allir herrar mæta á Herrakvöldið í kvöld. Húsið opnar kl. 19.30. Aðalfundur handknattleiksdeildar er á laugardaginn kl. 14.00.. Á sunnudag mæta Haukar kl. 18.00 í Krikann og sjá stelpurnar okkar leika við FH-dömur. Eftir leikinn er haldið á Ásvelli og þar horfum við á Haukastrákana sem fá GróttuKR drengi í heimsókn.. Fjölliðamót hjá 6.flokki alla…

  • SS-Bikarinn Undanúrslit

    Dregið var í undanúrslitum SS-bikars karla og kvenna nú í hádeginu. Í karlflokki voru dregin saman: Haukar – Valur Stjarnan – Fram Þessir leikir fara fram 5.desember n.k. Í kvennaflokki voru dregin saman: Grótta KR – Stjarnan ÍBV – Haukar Þessir leikir fara fram 19.janúar.

  • SS-bikarinn Haukar-HK

    Haukar unnu HK í bikarnum í kvöld. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 28-28 og höfðu Haukar það í framlengingunni og unnu 36-31. Í fyrri hálfleik voru Haukar 2 til 4 mörk yfir, staðan í hálfleik var 16-12. HK náði að jafna 18-18. Okkar menn náðu aftur forystunni og komust í 24-20. Jafnt var aftur 27-27…