Haukar – Grótta/KR mfl.ka.

Haukar voru langt frá sínu besta og hungraðir Seltirningar sóttu tvö stig á Ásvellina. Staðan í hálfleik var 8-13 og endaði leikurinn 22-26. Strákarnir okkar áttu sem fyrr segir dapran leik og gekk hvorki fram né aftur. Eitthvað virtust leikmenn og þjálfarar misskilja hvar baráttan átti að eiga sér stað og voru mestu lætin við tímavarðarborðið. Þeir gulklæddu máttu hafa sig alla við, við fingrabendingar og veifandi marglitum kortum. Meira verður varla sagt um þennan leik!!!

Haukar-GróttaKR mfl.ka

Haukastrákarnir unnu GróttuKR 31-25 á Ásvöllum í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-13. Okkar menn áttu í smá basli með gestina, leikurinn var nokkuð jafn í byrjun, við þó yfirleitt 2-3 mörkum yfir. Jafnt var 16-16 og 17-17, en þá sigu Haukar framúr, komust í 27-21 og unnu síðan 31-25.