Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • A-landslið karla

    Guðmundur Þ. Guðmundsson hefur tilkynnt val sitt á æfingahópi fyrir vináttuleiki við Pólverja í lok desember. Eftirtaldir leikmenn voru valdir: Markmenn: Guðmundur Hrafnkelsson, Pallamano ConversanoBirkir Ívar Guðmundsson, StjarnanBjarni Frostason, Haukar Hreiðar Guðmundsson, ÍRHorna- og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson, EssenJón Karl Björnsson, HaukarPáll Þórólfsson, AftureldingGylfi Gylfason, DüsseldorfEinar Örn Jónsson, Haukar Bjarki Sigurðsson, ValurSigfús Sigurðsson, ValurRóbert Gunnarsson,…

  • Haukar-Víkingur mfl.ka.

    Síðasti leikurinn í Essó-deildinni hjá strákunum er á morgun kl. 17.00 á Ásvöllum er þeir fá Víkinga í heimsókn. Eftir jólastúss dagsins er tilvalið að skella sér á Ásvelli og slaka aðeins á og horfa á “jólasveinana” okkar leika sér á vellinum. Eða fá smá útrás við að hvetja sveinana, því það er nokkuð víst…

  • Ný pæling á rúv.is/sport

    Ingólfur Hannesson hefur skrifað nýja pælingu þar sem hann tjáir sig um hið úrelta keppnisfyrirkomulag í handboltanum eins og hann kallar það: Það er best að segja hlutina beint út og það strax: Keppnisfyrirkomulag í handbolta hérlendis er úrelt og gamaldags ! Þetta eru svosem engin ný sannindi, en það er ástæða til þess að…

  • Ausan

    Ausan okkar hún Auður Hermannsdóttir eignaðist litla stelpu í dag. Haukafjölskyldan óskar henni og Guðjóni innilega til hamingju og bjóðum litlu dömuna velkomna í heiminn.

  • Haukar-Valur mfl.ka.

    Haukar unnu Val á Ásvöllum í kvöld með einu marki 24-23. Valsmenn voru yfir í byrjun fyrri hálfleiks 2-5 og 4-6 en þá fóru okkar menn í gang og jöfnuðu 7-7 og komust yfir 8-7, 11-9 og staðan í hálfleik var 15-10. Seinni hálfleikinn byrjuðu Haukarnir hörmulega og Valur nálgaðist okkur 16-15. Við fórum þá…

  • Haukar-Valur mfl.ka.

    Minnum á leikinn á Ásvöllum í kvöld kl. 20.00 Haukar-Valur í Esso-deildinni. Þrátt fyrir að hér mætist KFUM-drengir, þá má búast við hörkuleik, þar sem ekkert verður gefið eftir og bæði lið mæta örugglega vel stemmd eftir bikarleikinn fyrir viku. Alla vega er víst að okkar strákar ælta að ná í tvö stig og allir…

  • Heilsa og útlit á jólum

    Meistaraflokkur kvenna stendur fyrir fjáröflun vegna Grikklandsferðar, fimmtudaginn 13. des. 2001 kl. 20.00 á Ásvöllum. Kynntar verða vörur sem stuðla að vellíðan okkar yst sem innst. Gjafasett með hátíðarblæ og jólatilboð. Allt fyrir jóla- og áramóta-dekrið. Mætum öll og styðjum stelpurnar.

  • Fram-Haukar mfl.ka.

    Þar kom að því, strákarnir töpuðu stigi við Fram í gærkvöldi. Leikurinn endaði með jafntefli 24-24. Ekki var spilamennska manna mikið fyrir augað. Okkar menn klikkuðu á nokkrum vítum og dauðafærum og voru hreinlega að spila illa. Markahæstir voru Aron og Aliaksandr með 5 mörk hvor, Rúnar með 4 og Þorkell 3. Nú er bara…

  • Haukar-GróttaKR

    Stelpurnar unnu frábæran sigur á GróttuKR á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn til að byrja með 2-2, 4-4 en þá sigu Haukar framúr 10-6, 11-8, 13-9 og 16-9 í hálfleik. Þær héldu áfram í seinni hálfleik komust í 20-10, þá söxuðu gestirnir aðeins á forskotið, 21-15, 23-16. Okkar stelpur gáfu aftur í og komust…