Fram-Haukar mfl.ka.
Þar kom að því, strákarnir töpuðu stigi við Fram í gærkvöldi. Leikurinn endaði með jafntefli 24-24. Ekki var spilamennska manna mikið fyrir augað. Okkar menn klikkuðu á nokkrum vítum og dauðafærum og voru hreinlega að spila illa. Markahæstir voru Aron og Aliaksandr með 5 mörk hvor, Rúnar með 4 og Þorkell 3.
Nú er bara að rífa sig upp fyrir næstu leiki og klára árið með stæl.
