Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Veiðikynning

    Haukamenn eru farnir að anda með tálknunum, því sá silfraði er farinn að hugsa sér til hreyfings. Mánudagskvöldið 14. janúar n.k. kl. 20.30 verður kynning í anddyri veislusalarins að Ásvöllum á Húseyjarkvísl í Skagafirði. Nýtt veiðifélag, Veiðifélagið við Lækinn, sem er nýr leigutaki til næstu ára að Húseyjarkvísl, mun kynna og bjóða veiðileyfi fyrir komandi…

  • Haukar-Víkingur mfl.kv.

    Haukastelpur byrjuðu árið vel, unnu Víking 20-19 á Ásvöllum í dag. Okkar stelpur byrjuðu mun betur, komust í 4-0 en Víkingar komust fljótt inní leikinn 6-5, en Haukar náðu aftur yfirhöndinni og staðan í hálfleik var 11-7. Haukastelpur byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel og komust í 14-7 og allt útlit fyrir algjört bust og rólegan…

  • Hannes Þ. Sigurðsson

    Við óskum Hannesi til hamingju með að vera á leiðinni í atvinnumennskuna í knattspyrnu. Hannes er aðeins 18 ára og sonur Halldóru og fóstursonur Ingimars, sem gerði garðinn frægan í boltanum á árum áður. Hannes spilaði með yngri flokkum hjá okkur í handboltanum og var mjög efnilegur og hefði trúlega farið í atvinnumennsku í handbolta…

  • Gústi og Hildur

    Lítill fugl hvíslaði að okkur að Gústaf Bjarna og Hildur Lofts hefðu “látið verða af því” rétt fyrir áramótin. Hætt að lifa í synd og búin að gifta sig . Til hamingju með hjónabandið og bestu óskir með framtíðina.

  • A-landslið karla

    Fréttatilkynning frá HSÍ. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í þau verkefni sem framundan er hjá A-landsliði karla. Liðið mun taka þátt í móti í Noregi 4.-6.janúar n.k. og leika tvo leiki við Þjóðverja í Laugardalshöll 12. og 13.janúar. Eftir þá leiki mun Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynna þann hóp sem fer á EM í Svíþjóð. Markverðir:…

  • Haukarnir 2001

    Í árslok er ekki úr vegi að rifja upp nokkra minnisstæða atburði hjá meistaraflokkunum frá árinu sem er að líða. 4-liða úrslit í SS-bikarnum voru í byrjun febrúar. Þar unnu stelpurnar FH og strákarnir Selfoss og komust því bæði liðin í Bikarúrslitaleikina, sem fram fóru í Höllinni þann 17. febrúar. Þar urðu stelpurnar að sætta…

  • Fyrirliðarnir

    Að vanda fóru fyrirliðar meistaraflokanna fyrir sínum mönnum á árinu og hlutu þau viðurkenningar fyrir. Halldór Ingólfsson, fyrirliði mfl.karla var tilnefndur til Íþróttamanns Hafnarfjarðar. Hann var jafnframt valinn Íþróttamaður Hauka 2001 í árlegu hófi sem haldið var nú á gamlársdag. Harpa Melsteð, fyrirliði mfl.kvenna var valin handknattleikskona ársins af ÍSÍ. Til hamingju bæði tvö.

  • Flugeldasala Hauka 20% afslátt

    Eins og undanfarin ár eru hinar vinsælu flugeldaávísanir til sölu hjá Handknattleiksdeild Hauka. Ávísanirnar verða til sölu í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum : Föstudaginn 28. desember kl. 10.00-20.00 Laugardaginn 29. desember kl. 10.00-20.00 Sunnudaginn 30. desember kl. 10.00-20.00 Við viljum benda á að flugeldaávísanirnar sem fást á 1.000 krónur gilda sem úttekt á flugeldamörkuðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar…

  • Jólakveðja

    Sendum öllum Haukum nær og fjær sem og öðrum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Þökkum stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.