Veiðikynning
Haukamenn eru farnir að anda með tálknunum, því sá silfraði er farinn að hugsa sér til hreyfings. Mánudagskvöldið 14. janúar n.k. kl. 20.30 verður kynning í anddyri veislusalarins að Ásvöllum á Húseyjarkvísl í Skagafirði. Nýtt veiðifélag, Veiðifélagið við Lækinn, sem er nýr leigutaki til næstu ára að Húseyjarkvísl, mun kynna og bjóða veiðileyfi fyrir komandi sumar. Félagsmenn í Mokveiðideildinni og Haukum á Stöng eru hvattir til að mæta svo og allir aðrir sem áhuga hafa á tuðrunni á veturnar og þeim silfraða á sumrin. Veitingar þ.e. kaffi og annað slíkt verður á staðnum svo og kynntar veiðigræjur frá Veiðibúðinni við Lækinn.
