Hannes Þ. Sigurðsson
Við óskum Hannesi til hamingju með að vera á leiðinni í atvinnumennskuna í knattspyrnu. Hannes er aðeins 18 ára og sonur Halldóru og fóstursonur Ingimars, sem gerði garðinn frægan í boltanum á árum áður. Hannes spilaði með yngri flokkum hjá okkur í handboltanum og var mjög efnilegur og hefði trúlega farið í atvinnumennsku í handbolta ef hann hefði haldið áfram á þeirri braut. Nú er hann sem sé kominn til Viking í Noregi í atvinnumennsku í boltasparki og óskar Haukafjölskyldan honum velfarnaðar og velgengni á nýjum vettvangi.
