Flugeldasala Hauka 20% afslátt
Eins og undanfarin ár eru hinar vinsælu flugeldaávísanir til sölu hjá Handknattleiksdeild Hauka. Ávísanirnar verða til sölu í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum :
Föstudaginn 28. desember kl. 10.00-20.00
Laugardaginn 29. desember kl. 10.00-20.00
Sunnudaginn 30. desember kl. 10.00-20.00
Við viljum benda á að flugeldaávísanirnar sem fást á 1.000 krónur gilda sem úttekt á flugeldamörkuðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar fyrir 1.250 krónur.
Haukafólk og velunnarar, nýtum okkur góðan afslátt og styrkjum um leið félagið okkar til að efla starfið enn frekar og styðjum jafnframt við bakið á Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Kaupum flugeldaávísanir og fögnum áramótum að hætti Hauka.
