Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • SS-Bikar 8-liða úrslit karla

    Nú mæta allir Haukar á Ásvelli í kvöld kl. 20.00 þegar við tökum á móti HK í 8-liða úrslitum SS-bikarsins. Við munum hvað var rosalega gaman á úrslitaleiknum í fyrra, en þá lögðum við einmitt HK í Höllinni. Þó svo strákarnir okkar hafi átt frábæra leiki í haust, þá er ekki spurning að áhorfendur geta…

  • Herrakvöld Hauka

    Hið árlega Herrakvöld Hauka verður í veislusal handknattleiksdeildar að Ásvöllum föstudaginn 30. nóvember. Húsið opnar kl. 19.30 og hefst borðhald stundvíslega kl. 20.30. Fyrir utan glæsilegan matseðil verður fjölbreytt dagskrá undir öruggri veislustjórn Konráðs Jónssonar. Þetta er skemmtun sem enginn sannur herramaður má láta fram hjá sér fara enda er lagt upp með að skemmtuninni…

  • Spjallsvæðið

    Spjallsvæði Hauka hefur nú verið opnað. Þar geta Haukar og aðrir handboltaáhugamenn spjallað um boltann. Verum jákvæð og sýnum þroska í umræðum. Gagnrýni er af hinu góða en nafnlausar persónuárásir og skítkast á ekki heima hér. Til þess að fara á spjallið smellið hér eða á tengilinn hér vinstra megin.

  • Essodeild ka Haukar-Þór

    Haukar unnu Þórsara 34-32 í Esso-deildinni á Ásvöllum í gærkvöldi. Eitthvað stóðu norðandrengir í okkar mönnum, en í lokin tókst þeim að kyngja og unnu sinn níunda sigur í deildinni og tróna enn á toppnum. Leikurinn var jafn framan af, lítið um varnir og mikið skorað. Staðan í hálfleik var 17-18 fyrir Þórsara, en Haukar…

  • Haukar-Þór

    Vekjum enn meiri athygli á því að leik Hauka og Þórs hefur verið seinkað aftur til kl. 20.00. Leiðin að norðan var lengri og strengri en menn ætluðu. Mætum og sjáum hvað verður á boðstólum í bakarínu í kvöld.

  • Haukar – Þór

    Athygli er vakin á því að leik Hauka og Þórs á sunnudaginn hefur verið flýtt til 17:00. Leikurinn átti að vera kl.20:00. Allir að mæta og sjá spútniklið vetrarins gegn núverandi meisturum sem nýverið tóku mosfellinga í konditoríið.

  • A-landslið kvenna

    A-landslið kvenna fer í æfingaferð til Beglíu og Hollands 22.nóvmeber. Stefán Arnarson og Örn Ólafsson hafa valið eftirtalda leikmenn í ferðina. Berglind Hansdóttir Valur Helga Torfadóttir Víkingur Ágústa Björnsdóttir Grótta-KR Dagný Skúladóttir ÍBV Drífa Skúladóttir Valur Elva Hreggviðsdóttir Valur Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir Víkingur Hafdís Hinriksdóttir FH Hafrún Kristjánsdóttir Valur Hanna Stefánsdóttir Haukar Harpa Melsted Haukar…

  • Evrópuævintýrið

    Okkar strákar töpuðu naumt 28-30 fyrir margföldum Evrópumeisturum Barcelona á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn framan af, og staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Hauka. Í byrjun seinni hálfleiks slökuðu okkar menn aðeins á og Börsungar skriðu framúr og náðu mest 6 marka forystu. En Haukastrákar rifu sig aftur af stað og náðu að…

  • Grikklandsfréttir

    Stelpurnar spiluðu við Búlgaríu núna í kvöld og töpuðu 28-22. Leikurinn var jafn allan tímann nema rétt í restina, þá sigu Búlgörsku dömurnar framúr. Haukastelpur náðu að sýna ágætis leik, þrátt fyrir að morgunæfingin hafi verið á G-streng, þar sem töskurnar skiluðu sér ekki á áfangastað fyrr en seinnipartinn í dag. Á morgun er æfing…