Evrópuævintýrið
Okkar strákar töpuðu naumt 28-30 fyrir margföldum Evrópumeisturum Barcelona á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn framan af, og staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Hauka. Í byrjun seinni hálfleiks slökuðu okkar menn aðeins á og Börsungar skriðu framúr og náðu mest 6 marka forystu. En Haukastrákar rifu sig aftur af stað og náðu að minnka muninn. Halldór fyrirliði fór fyrir sínum mönnum, gerði 12 mörk og réðu Börsungar ekkert við hann frekar en í fyrri leiknum.
Þrátt fyrir naumt tap getum við verið mjög stolt af okkar strákum. Þetta eru engar smásleggjur í liði Spánverja og hvergi veikur hlekkur.
Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á Ásvelli og óhætt að segja að menn hafi fengið vel fyrir aurinn, góð stemming var á pöllunum og ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst að sjá tvö frábær stórlið etja kappi saman.
