Grikklandsfréttir
Stelpurnar spiluðu við Búlgaríu núna í kvöld og töpuðu 28-22. Leikurinn var jafn allan tímann nema rétt í restina, þá sigu Búlgörsku dömurnar framúr. Haukastelpur náðu að sýna ágætis leik, þrátt fyrir að morgunæfingin hafi verið á G-streng, þar sem töskurnar skiluðu sér ekki á áfangastað fyrr en seinnipartinn í dag. Á morgun er æfing fyrir hádegi og leikur við Túnis um kvöldið og á sunnudag leikur við Grikkland.
Annars er allt fínt að frétt af druslunum okkar, hótelið fínt, maturinn góður og gæjarnir flottir.
