SS Bikar 8-liða úrslit karla

Í hádeginu í dag var dregið í 8-liða úrslit karla í SS bikarnum.

Drátturinn var þessi:

Haukar 2 – HK
Haukar – ÍR
Grótta KR – Þór Ak.
KA – ÍBV

Leikið verður 24 og 25 nóvember

SS-Bikar 8-liða úrslit karla

Nú mæta allir Haukar á Ásvelli í kvöld kl. 20.00 þegar við tökum á móti HK í 8-liða úrslitum SS-bikarsins. Við munum hvað var rosalega gaman á úrslitaleiknum í fyrra, en þá lögðum við einmitt HK í Höllinni. Þó svo strákarnir okkar hafi átt frábæra leiki í haust, þá er ekki spurning að áhorfendur geta haft mikil áhrif og í erfiðum leik er gott að fá stuðning frá pöllunum. Við mætum því öll og tökum vel á móti Kópvæingum og sýnum þeim hvernig “alvöru” heimavöllur er og hvetjum Hauka til sigurs, því við ætlum aftur í Höllina.