SS-bikarinn Haukar-HK

Haukar unnu HK í bikarnum í kvöld. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 28-28 og höfðu Haukar það í framlengingunni og unnu 36-31. Í fyrri hálfleik voru Haukar 2 til 4 mörk yfir, staðan í hálfleik var 16-12. HK náði að jafna 18-18. Okkar menn náðu aftur forystunni og komust í 24-20. Jafnt var aftur 27-27 og endaði leikurinn 28-28. Í framlengingu réðu Haukar leiknum og unnu 36-31 og eru komnir áleiðis í Höllina. Mörkin skorðu Jón Karl 13 stykki, Halldór 7, Rúnar 5, Einar Örn og Aron 4 hvor og Aliaksandr 3.