Haukar-GróttaKR mfl.kv.

Stelpurnar okkar unnu góðan sigur 28-20 á GróttuKR á Ásvöllum í kvöld.
Það var jafnræði með liðunum í byrjun, jafnt á öllum tölum í 6-6, en þá náði GróttaKR 2ja marka forskoti 6-8. Jafnt var aftur 8-8 og 9-9 en þá kom góður kafli hjá Haukum og sást happastaðan 13-10 á töflunni við mikla gleði áhorfenda. Í hálfleik var staðan 14-12.

Gestirnir gerðu fyrsta mark seinni hálfleiks en þá tóku stelpurnar okkar sig á og breyttu stöðunni úr 14-13 í 18-14. Þær juku svo forskotið jafnt og þétt það sem eftir var leiks og fögnuðu átta marka sigri í leikslok.

Haukar-GróttaKR mfl.kv.

ATH breyttan leiktíma hjá stelpunum á morgun. Leikurinn er kl. 17.30 á Ásvöllum, Haukar-GróttaKR. Allir að mæta.