Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Endurnýjun samninga

    Aliaksandr Shamkuts hefur endurnýjað samning sinn við Handknattleiksdeild Hauka til næstu tveggja ára. Við Haukamenn fögnum því og nú má segja að hann hafi náð fyrsta stigi ættleiðingar inn í Haukafjölskylduna.

  • Aðalfundir

    Aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka var haldinn á Ásvöllum s.l. laugardag. Þar bar helst til tíðinda að hinn “ástkæri” formaður okkar Þorgeir Haraldsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Við formennsku tók Eiður Arnarson, sem verið hefur varaformaður undanfarin ár. Án nokkurs efa mun hann stýra deildinni af myndarskap næstu árin eða áratugi, (hér kemur enginn…

  • Lokahóf HSÍ

    Lokahóf HSÍ var haldið á Broadway í gærkvöldi. Þar var kynnt val leikmanna og þjálfara á þeim bestu á keppnistímabilinu. Ekki er hægt að segja annað en Haukar hafi hlotið glæsileg verðlaun. Besti leikmaður Esso-deilar karla er Halldór Ingólfsson Besti leikmaður Esso-deildar kvenna er Inga Fríða Tryggvadóttir Besti þjálfari karla er Viggó Sigurðsson Besti þjálfari…

  • Nýr leikmaður

    Í dag gekk Robertas Pauzuolis leikmaður til liðs við Hauka. Robertas er 29 ára rétthent skytta sem lék með Selfossi á liðnu tímabili. Robertas Pauzuolis gerði 3ja ára samning við Hauka og bjóðum við hann velkominn. Velkominn Robertas í Haukafjölskylduna.

  • Endurnýjun samninga

    Í dag undirrituðu landsliðsmennirnar Halldór Ingólfsson og Bjarni Frostason nýja samninga við félagið sitt Hauka, Halldór til þriggja ára og Bjarni til eins árs. Það er mikil ánægja innan stjórnar að þessir landsliðsmenn spili enn og aftur fyrir félagið. Þeir eru tveir af traustu hlekkjunum í frábæru liði Haukanna og stuðningsmenn fagna þessu án efa.

  • Aðalfundur

    Aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka verður haldinn á Ásvöllum laugardaginn 11. maí n.k. kl. 11.00. Dagskrá: vengjulega aðalfundarstörf. Stjórnin

  • Lokahóf handknattleiksdeildar

    Lokahóf handknattleiksdeildarinnar verður haldið miðvikudaginn 8. maí næstkomandi. Stuðningsmenn og velunnarar eru hvattir til að mæta. Miðaverði er stillt í hóf og er aðeins 1.000 kr. og er innifalinn veislumatur og skemmtiatriði. Þar sem að skammur tími er til stefnu verða miðarnir seldir við innganginn. Húsið verður opnað klukkan 19:30 og borðhald hefst 20:30.

  • Nýr leikmaður til Haukanna

    Í kvöld gekk hinn bráðefnilegi hornamaður Þórir Ólafsson til liðs við Hauka. Þórir er uppalinn Selfyssingur og hefur leikið með þeim undanfarin ár. Þórir mun leika með Haukum næstu þrjú tímabil hið minnsta og bjóðum við Haukamenn Þóri velkominn og vonum við að hann njóti sín í Haukafjölskyldunni. Velkominn Þórir.Á myndinni eru Viggó, Þórir og…